Markaðurinn
Samruni Kjarnafæðis og Norðlenska
Eigendur Kjarnafæðis og Norðlenska hafa komist að samkomulagi um helstu skilmála samruna félaganna. Kjarnafæði er í eigu bræðranna Eiðs og Hreins Gunnlaugssona, en Norðlenska er í eigu Búsældar, sem er í eigu um 500 bænda á Íslandi.
Með samruna félaganna eru eigendur að bregðast við breytingum í rekstrarumhverfi matvælaiðnaðar undanfarin misseri. Það er mat eigenda félaganna að sameinað félag sé betur í stakk búið til að veita viðskiptavinum sínum og birgjum, ekki síst bændum, góða þjónustu á samkeppnishæfu verði.
Kjarnafæði og Norðlenska hafa átt í viðræðum um samruna frá því á haustmánuðum 2018 en líkt og fram hefur komið hafa félögin nú náð saman um þau atriði sem útaf stóðu.
Samkomulag um samruna félaganna er með fyrirvara um samþykki Samkeppnisyfirvalda og samþykki hluthafafundar Búsældar.
Íslandsbanki veitir samrunafélögunum ráðgjöf í samrunaferlinu.
Um Kjarnafæði
Kjarnafæði var stofnað árið 1985 af bræðrunum Eiði og Hreini Gunnlaugssonum og framleiðir úrval kjötvara, einkum undir vörumerkinu Kjarnafæði. Hjá félaginu starfa 130 manns og fer starfsemin að mestu fram á Svalbarðseyri. Til viðbótar við rekstur Kjarnafæðis er afurðarstöð SAH á Blönduósi í sömu eigu, en þar eru unnin 52 ársverk, ásamt um 34% hlut í Sláturfélagi Vopnfirðinga, þar sem rekin eru sauðfjársláturhús.
Um Norðlenska
Norðlenska varð til árið 2000 við samruna KEA og Kjötiðjunnar Húsavík, en stækkaði árið 2001 þegar félagið sameinaðist þremur kjötvinnslum Goða. Félagið er í eigu Búsældar, félags kjötframleiðenda í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og á Austur- og Suðausturlandi, en hluthafar Búsældar eru um 500 bændur. Um 190 ársverk eru unnin hjá félaginu og skiptist starfsemin á milli Akureyrar, þar sem rekið er stórgripasláturhús og kjötvinnsla, Húsavíkur, þar sem rekin er sauðfjársláturhús og kjötvinnsla fyrir sauðfjárafurðir, og söluskrifstofa í Reykjavík. Félagið framleiðir úrval kjötvara, einkum undir vörumerkjunum Norðlenska, Goði, Húsavíkurkjöt, og KEA.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Frétt6 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun20 klukkustundir síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanGestir stjórna gröfum á meðan þeir borða og drekka




