Frétt
Góð ráð við grillið
Fátt jafnast á við það að njóta góðs grillmatar undir sólinni í sumarbústaðnum eða útilegunni. Höfum hugfast að ef ekki er rétt staðið að grillun þá geta sjúkdómsvaldandi örverur eða heilsuspillandi efni spillt gleðinni.
Hugar þú að eftirfarandi þegar þú grillar?
- Þværð þú hendur áður en þú hefst handa við tilreiðslu kjöts og annarra matvæla og eftir snertingu við hrátt kjöt? Hætta á krossmengun minnkar verulega með viðeigandi handþvotti.
- Gætir þú þess að kjöt eða safi úr kjöti komist ekki í snertingu við matvæli sem eru tilbúin til neyslu svo sem grænmeti og kaldar sósur? Hægt er að forðast krossmengun með því að nota eina töng fyrir hrátt kjöt og eina fyrir grillað kjöt og sömuleiðis eitt fat fyrir hrátt kjöt og eitt fyrir grillað kjöt.
- Gætir þú þess að brenna ekki grillmatinn? Brenni yfirborð matvælanna geta myndast skaðleg og krabbameinsvaldandi efni. Það er því mikilvægt að skera frá alla brennda hluta áður en matvælanna er neytt. Gott er að forðast það að grilla mjög feitan mat. Þegar fita lekur á eldin leikur gjarnan logi um matvælin.
- Hitar þú kjötið nægilega? Matvæli verða að ná a.m.k. 75°C í gegn til þess að sjúkdómsvaldar eins og salmonella drepist. Mikilvægt er að gegnumsteikja kjúklinga, svínakjöt og unnar kjötvörur s.s. hamborgara þar sem meiri líkur er á örverum innst í hökkuðum vörum en í hreinum vövðum.
- Er kæling grillmatarins viðeigandi á ferðalaginu? Geymsluþol hrávara minnkar til muna ef þeim er ekki haldið köldum og eykur líkur á matarsjúkdómum.
- Forðast þú Teflon við grillið? Teflon á ekki að nota þegar við grillum, hvorki sem grillgrindur eða áhöld því efnið bráðnar við hitastig sem er ekki óvanalegt þegar grillað er. Auk þess getur myndast hættulegt gas. Teflon er samansett af efninu PTFE (Polytetrafluoroethylene) sem þolir ekki hitastig yfir 300°C og er talið skaðlegt, berist það í líkamann.
- Bíður þú eftir að grillvökvi er fullbrunninn og kolin eru orðin glóandi og grá áður en þú setur matinn á grillið? Með þessu minnka líkurnar að ýmis skaðleg efni berist í grillmatinn.
- Þrífur þú grillið reglulega og eftir notkun? Fita sem situr á grindum og lekur ofan í grillið brennur næst þegar grillað er og skaðleg efni geta sest á matvælin. Það er því góð regla að taka grillið í gegn á vorin og þrífa sýnilega fitu að lokinni grillun.
Með því að fylgja þessum ráðleggingum má koma í veg fyrir heilsuspillandi örverur og efni í grillmatnum. Hugum að réttri meðferð matvæla og notkun áhalda/íláta, ásamt almennu hreinlæti til að njóta heilsusamlegrar grillstundar í faðmi vina og fjölskyldu.
Hér má sjá upplýsingasíðu Matvælastofnunar um grillun matvæla og um matarsýkingar.
Mynd: úr safni
-
Uppskriftir3 dagar síðan
Jóla gúrkur – Asíur
-
Keppni5 dagar síðan
Grétar Matthíasson keppir í kokteilagerð um helgina í stærsta spilavíti í Evrópu
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Vel heppnað eftirréttanámskeið Iðunnar og Ólöfu Ólafsdóttur Konditor og eftirréttameistara – Myndir og vídeó
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýr Indverskur veitingastaður opnar í Miðbæ Selfoss
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Fullbúin bás til sölu á besta stað í Mathöll Höfða
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Girnilegt smurbrauð hjá Skál á nýjum jólamatseðli
-
Frétt4 dagar síðan
KS hyggst kaupa B. Jensen – Ágúst Torfi: Ég get staðfest að það eru alvarlegar viðræður í gangi…
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Jól á Ekrunni