Starfsmannavelta
Samið við Hótel Skaftafell um rekstur veitingasölu í Skaftafelli
Vatnajökulsþjóðgarður hefur skrifað undir samning við eigendur Hótels Skaftafells um að þau taki að sér rekstur veitingasölu í Vatnajökulsþjóðgarði í Skaftafelli til eins árs. Gert er ráð fyrir að nýr rekstraraðili hefji starfsemi í maí, segir í tilkynningu frá Vatnajökulsþjóðgarðinum.
Sjá einnig: Veitingaskálinn í Skaftafelli verður lokaður í apríl
Náttúrufegurð, veðurblíða, saga og menning hefur löngum gert Skaftafell að vinsælum áfangastað ferðamanna. Þar eru margar gönguleiðir og þó leiðirnar að Svartafossi og Skaftafellsjökli séu fjölsóttastar eru einnig margir sem fara lengri leiðirnar: upp að Kristínartindum, inn í Morsárdal, inn í Bæjarstaðaskóg og fleira mætti telja. Margir nýta tjaldsvæðið, aðrir gista annars staðar en koma í Skaftafell í lengri eða skemmri göngur.
Gestum í Skaftafelli hefur fjölgað mikið síðustu árin. Yfir vetrarmánuðina eru þeir oft um þúsund á dag, sú tala margfaldast á sumrin. Það er augljós staðreynd að fyrir slíkan gestafjölda þarf að vera hægt að uppfylla grunnþarfir varðandi mat og ýmsa þjónustu.
Í haust ályktaði stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs og svæðisráð suðursvæðis um að þörf væri fyrir veitingarekstur í Skaftafelli en að sá rekstur væri ekki hluti af kjarnastarfsemi þjóðgarðsins. Þjóðgarðurinn auglýsti eftir áhugasömum aðilum til að taka að sér reksturinn og áhersla var lögð á að starfsemin myndi styðja við markmið þjóðgarðsins og lúta skilyrðum sem nánar voru útlistuð til þeirra sem óskuðu eftir gögnum.
Enginn þeirra sem óskuðu eftir gögnum sendi inn tilboð, en áhugi var til staðar þó enginn treysti sér til að uppfylla öll viðmiðin sem sett höfðu verið. Eins var skortur á starfsmannahúsnæði mikil hindrun. Farið var í viðræður og á föstudag náðust samningar sem báðir aðilar gátu fallist á. Það er með mikilli ánægju og tilhlökkun sem við bjóðum fyrirtækið Hótel Skaftafell velkomið til samstarfs, en á sama tíma þökkum við öllum þeim aðilum sem sýndu okkur velvilja og könnuðu möguleika á samstarfi.
Mynd: vatnajokulsthjodgardur.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn4 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Frétt7 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Keppni3 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Markaðurinn2 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð





