Frétt
Framkvæmdir hefjast við gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri

Teknar voru fjórar skóflustungur til marks um upphaf framkvæmda við gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók í gær skóflustungu að nýrri gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs við Kirkjubæjarklaustur ásamt fulltrúa þjóðgarðsins, Skaftárhrepps og landeiganda jarðarinnar Hæðargarðs. Byggingin mun rísa við svonefndan Sönghól í landi Hæðargarðs, sunnan Skaftár, gegnt byggðinni á Kirkjubæjarklaustri og er byggingarlóðin höfðingleg gjöf til Vatnajökulsþjóðgarðs frá Magnúsi Þorfinnssyni, bónda í Hæðargarði.
Gestastofan verður meginstarfsstöð Vatnajökulsþjóðgarðs á vestursvæði hans með aðstöðu fyrir upplýsingagjöf, sýningarhald, verslun, kaffihús, skrifstofu- og starfsmannaaðstöðu, geymslu og tæknirými í kjallara.
Sjá einnig:
Samið við Hótel Skaftafell um rekstur veitingasölu í Skaftafelli
Byggingin verður 620 m2 á einni hæð auk 145 m2 kjallara eða samtals 765 m2 að flatarmáli. Fyrsti áfangi framkvæmdarinnar, aðkomuvegur og bílastæði, var boðinn út fyrr á þessu ári og er áætlað að framkvæmdum vegna hans ljúki í ágúst n.k. Unnið er að undirbúningi útboða vegna jarðvegsvinnu og við bygginguna sjálfa sem gert er ráð fyrir að verði skilað í lok árs 2022.
„Þetta er stór áfangi í áframhaldandi uppbyggingu gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs.“ Gestastofur eru eins og hlið inn í þjóðgarða. Í þeim er verðmætunum miðlað sem finna má innan þjóðgarðsmarka, veittar haldgóðar upplýsingar og góð ráð um hvernig best megi njóta þeirra svæða sem við höfum tekið frá fyrir komandi kynslóðir. Gestastofan er líka innspýting og aðdráttarafl fyrir samfélagið í Skaftárhreppi og ég óska okkur öllum til hamingju með þennan áfanga.“
segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra í tilkynningu.
Athöfnin fór fram 7. júní s.l. afmæli Vatnajökulsþjóðgarðs. Auk Guðmundar Inga og Magnúsar Þorfinnssonar tóku Ásta Berghildur Ólafsdóttir, formaður svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og Sandra Brá Jóhannsdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps skóflustungur að hinni nýju gestastofu. Tónlistarfólk frá tónlistarskóla Skaftárhrepps, þau Zbigniew Zuchowicz, Bríet Sunna Bjarkadóttir og Teresa Zuchowicz léku við athöfnina og í veislukaffi í umsjón Kvenfélags Kirkjubæjarhrepps sem boðið var til í félagsheimilinu Kirkjuhvoli að athöfn lokinni.
Mynd: stjornarradid.is
-
Íslandsmót barþjóna5 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Frétt4 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Markaðurinn4 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý mathöll, fleiri verslanir og vinsælir viðburðir auka aðsókn í Smáralind
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanDiskósúpa og fræðsla í forgrunni í átaki gegn matarsóun
-
Markaðurinn5 dagar síðanPistasíu- og sítrónukaka sem bráðnar í munni



