Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Hjá Höllu opnar á Keflavíkurfugvelli
Veitingastaðurinn Hjá Höllu opnaði formlega fyrir helgi í suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli þar sem gengið er út í hlið C á flugvellinum.
Hjá Höllu var með hagstæðasta tilboðið í samkeppni um útleigu á aðstöðu undir veitingaþjónustu sem fram fór síðastliðið vor. Veitingastaðurinn er rekinn af Höllu Maríu Svansdóttur sem hefur rekið veitingastað undir sama merki í Grindavík við góðan orðstír. Gerður var 4 ára samningur um reksturinn.
Hjá Höllu býður uppá eldbakaðar súrdeigspítsur, ferskan fisk frá Grindavík, fersk salöt sem og úrval rétta til að taka með sér í flug. Búið er að koma fyrir stórum gaseldofni þar sem pítsurnar eru bakaðar við háan hita á aðeins 90 sekúndum. Þeir farþegar sem eru hvað mest að flýta sér geta gripið með sér tilbúnar pítsusneiðar.
„Við erum mjög spennt að hefja nú rekstur á staðnum en opnunin er búin að vera í undirbúningi í sumar, allt frá því að samkeppninni lauk. Það er búið að vera mikil áskorun að setja upp stað sem þennan í flugstöðinni enda fjölmörg atriði sem þarf að hafa í huga í slíku verkefni með allan þann fjölda farþega sem fer hér um á hverjum degi.
Viðtökurnar hafa verið afar góðar hingað til en staðurinn var opnaður til prufu fyrir nokkru síðan. Við bjóðum alla þá sem huga á ferðalög úr landi velkoma til okkar og prófa það sem við höfum uppá að bjóða.“
Segir Halla María Svansdóttir í tilkynningu frá Isavia.

Gunnhildur Vilbergsdóttir deildarstjóri Viðskiptadeildar Keflavíkurfugvallar og Halla María Svansdóttir við opnunina
Fjölmenni var við opnun staðarins fimmtudaginn 18. október og er staðurinn spennandi viðbót við þann fjölda veitingastaða sem fyrir eru í flugstöðinni. Meðfylgjandi eru myndir frá opnuninni.
Myndir: isavia.is
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn7 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar1 dagur síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun11 klukkustundir síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um






