Keppni
Einstök White Ale hlýtur æðstu verðlaun í alþjóðlegri bjórkeppni í New York
Einstök Ölgerð hlaut nýverið æðstu verðlaun, tvöfalt gull, á alþjóðlegu bjórkeppninni í New York (e. The 8th annual New York International Beer Competition) fyrir Einstök White Ale í flokki Wit bjóra bruggaðra að Belgískri fyrirmynd (e. Belgian Style Witbier).
Þessi virta keppni sem haldin er einu sinni á ári verðlaunar aðeins þrjá bestu bjórana í þeim 50 flokkum sem keppt er í. Í ár voru yfir 600 bjórar frá 14 löndum sendir til keppni. Til að hljóta tvöfallt gull, þurfa allir dómarar keppninnar sem eru fagfólk í bjórgeiranum, að gefa viðkomandi bjór hæstu mögulegu einkunn. Í ár voru það aðeins 14 bjórar, um 2% innsendinga, sem hlutu þessa æðstu viðurkenningu.
Einstök vann aukinheldur til verðlauna í öllum þeim flokkum sem sent var inn í. Einstök Doppelbock vann gull, Toasted Porter silfur og Arctic Pale Ale, Arctic Berry Ale og Wee Heavy unnu til bronsverðlauna í sínum flokkum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
„Við stefnum hátt og leggjum mikið upp úr gæðum og erum því að vonum afar ánægð með að hljóta þessa gríðarlega mikilvægu viðurkenningu þess frábæra fagfólks sem stendur að þessari mikilsvirtu keppni“
sagði Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Mynd: einstokbeer.com
-
Markaðurinn5 dagar síðanSuperMeals heldur áfram að þróast: kiosk-lausn tilbúin og símaveski á loka metrum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanVölundur Snær opnar nýjan veitingastað í sveitinni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Markaðurinn2 dagar síðanInnnes hefur samstarf við þýskan mjólkurrisa
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Markaðurinn3 dagar síðanSvona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans



