Vertu memm

Neminn

Tveir kokkanemar segja sitt álit á JF

Birting:

þann

ón Axel Ólafson dagskrárstjóri Stöðvar 2 og BylgjunnarÁ bloggsíðu Kokkanema í 2.bekk er hægt að lesa ýmislegt skondið, t.a.m. er hér ein færsla sem segir frá óheppilegu atriði, þegar 2 kokkanemar segja álit sitt á Jóa Fel í heita pottinum í Laugum.

Eiki Elvis segir hér frá:
Hverju haldið þið að kallinn hafi lent í áðan. Ég skellti mér í laugina með Badda félaga mínum, sem er að læra í Perlunni, og við fórum beint í pottana. Ekki leið á löngu fyrr en við vorum farnir að spjalla við mann sem var í lauginni með syni sínum. Hann hafði heyrt að við vorum að tala um mat og spyr okkur út í matreiðslu og annað slíkt. Svo kom að henni, þessari spurningu sem flestir sem vinna í atvinnueldhúsi hafa fengið:

„Hvað finnst þér um Jóa Fel?“
Ég hef ákveðnar skoðanir á þættinum sem ég lét í ljós. Hann sést aldrei þvo á sér hendurnar, notar oft sömu brettin fyrir allt hráefni þ.e. grænmeti, kjúkling og annað kjötmeti o.s.f.v. o.s.f.v.
Þegar við vorum að fara upp úr og í sturtu þá segir Baddi:“ Þetta var þrumu ræða sem þú hélst í pottinum.“ „Hvað meinarðu?“ segi ég. „Þetta með Jóa Fel. Veistu ekki við hvern þú varst að tala?“ Ég hristi hausinn.“Þetta var Jón Axel Ólafson dagskrárstjóri Stöðvar 2 og Bylgjunar!“

Bloggsíða kokkanemana: www.blog.central.is/2bekkur

[email protected]

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið