Frétt
Stóra matarbókin
Hjá Forlaginu er komin út Stóra matarbókin matargerð meistaranna, þýdd og staðfærð af Nönnu Rögnvaldardóttur.
Hér er komin bókin sem svarar öllum spurningum þínum um mat og matargerð, eflir sjálfstraustið í eldhúsinu og gerir þér kleift að elda allt sem þig langar til.
Hvernig á að úrbeina lambalæri? Hvenær er marensinn hæfilega þeyttur? Er hægt að búa til gott súrdeigsbrauð heima í eldhúsi? Hvernig er best að flaka fisk? Hvernig á að sjóða og móta sushi-hrísgrjón? Hvernig sýður maður egg …?
Í Stóru matarbókinni er farið rækilega yfir alla helstu grunnþætti matargerðar, frá sósugerð, pastagerð og flökun á fiski yfir í kökubakstur og ísgerð. Einnig er sagt frá undirstöðuatriðum í svæðisbundinni matargerð, t.d. kínverskri, taílenskri og mexíkóskri.
Í bókinni eru þúsundir litmynda til skýringar og áhersla er lögð á að sýna og kenna vinnubrögð og aðferðir. Mörg hundruð uppskriftir eru í bókinni, sem er stútfull af fróðleik, leiðbeiningum og hugmyndum sem tryggja frábæran árangur í eldhúsinu.
Ýmsir þekktustu og færustu matreiðslumeistarar heims sýna hér grunnaðferðir og eigin útfærslur, miðla af reynslu sinni og ljúka upp leyndardómum eldhússins. Hver vill ekki fá fisk- og grænmetisuppskriftir hjá Charlie Trotter, læra kökugerðarlist af Pierre Hermé eða láta sjálfan Ferran Adrià á El Bulli segja sér til?
Hvort sem þú ert byrjandi að feta fyrstu skrefin í eldhúsinu, sælkeri sem langar að prófa eitthvað nýtt og spennandi eða ástríðukokkur sem vill vita allt og öðlast færni til að elda flotta veislurétti, þá er Stóra matarbókin einmitt bók fyrir þig.
Jill Norman er aðalritstjóri Stóru matarbókarinnar. Hún hefur skrifað og ritstýrt fjölda matreiðslubóka og fengið margar viðurkenningar fyrir. Hún hefur yfirgripsmikla þekkingu á mat og matargerð um heim allan og er heimsþekktur sérfræðingur um krydd og kryddjurtir.
Þýðandinn Nanna Rögnvaldardóttir hefur samið allmargar matreiðslubækur, þar á meðal stórvirkin Matarást og Matreiðslubók Nönnu, og skrifað mikið um mat og matargerð í blöð og tímarit.
Stóra matarbókin matargerð meistaranna er 647 síður.
Tilboðsverð fram að áramótum er 12.990 kr.
Fullt verð er 14.990 kr.
Fréttatilkynning
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMyndir: Veislusýning Múlabergs fór fram úr væntingum
-
Keppni5 dagar síðanSkráning í tvær eftirsóttustu matreiðslukeppnir landsins hafin
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMyndir: Bakaradeildin í Hótel- og matvælaskólanum tók þátt í Tyllidögum
-
Frétt6 dagar síðanGrunur um salmonellu í kjúklingalærum frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn4 dagar síðanKjúklingabringur í ljúffengri rjóma- og sweet chili sósu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanDuck & Rose lokar á konudag – nýr staður tekur við undir nafninu Gamla Reykjavík
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýtt íslenskt kerfi einfaldar máltíðapantanir, dregur úr matarsóun og tengist öðrum kerfum
-
Starfsmannavelta19 klukkustundir síðan„Því miður dugði það ekki til“ eigendur Sjávarsetursins tilkynna lokun





