Vertu memm

Frétt

Völli með íslenska matarveislu í Rock Star: Supernova

Birting:

þann

Völundur Snær Völundarson

Völundur Snær Völundarson

Matreiðslumaðurinn Völundur Snær Völundarson er nú á leiðinni til Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem hann mun hitta Magna Ásgeirsson og félaga hans í raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova. Tilgangurinn með ferðinni er að elda alvöru íslenskan mat handa rokkurunum í dag þegar þátturinn verður tekin upp.

„„Ég á að reiða fram íslenska veislu fyrir Magna og félaga,“

segir Völundur þegar fréttavefur Morgunblaðsins náði tali af honum. Hann bætir því við að ákvörðunin um þetta hafi verið tekin hratt, en hann var á leiðinni út á land að steggja félaga sinn þegar honum var skyndilega snúið við.

Völundur tekur mikið af hráefnum með sér út en félagar hans í matreiðslugeiranum í Bandaríkjunum munu aðstoða hann með þau hráefni sem upp á vantar.

„„Ég komst að því að Magni er farinn að sakna grænu baunanna mjög mikið, þannig að ég tók með mér grænar baunir. Svo er maður náttúrulega með skyr, lambakjöt o.fl.“

segir Völundur.

Aðspurður segir Völundur hugmyndina hafa komið frá Ferðamálaráði Íslands í Bandaríkjunum (Icelandic Tourist Board – North America). Hann segir ekkert öruggt hvað varðar að sjálf veislan og grænu baunirnar muni sjást í sjónvarpinu. „Þau vildu sýna stuðning og senda kokk á staðinn. Það þýðir ekkert minna þegar kóngurinn er kominn í lokaþáttinn,“ segir hann.

Mynd: aðsend

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið