Frétt
Nanna Rögnvaldardóttir hætt hjá Gestgjafanum
Matargúrú Íslands, Nanna Rögnvaldardóttir, er að hætta á Gestgjafanum eftir farsælt starf á blaðinu, aðdáendum blaðsins til mikilla ama enda Nanna verið kjölfestan í blaðinu sem er eitt mest selda tímarit landsins.
Reyndar hóf Nanna störf hjá Iðunni fyrir tuttugu árum en þegar tímaritaútgáfan Fróði keypti það fyrirtæki fylgdi Nanna með í kaupunum, í fyrstu starfaði hún sem lausapenni en hefur verið fastráðin í fimm ár. Það má því segja að þetta sé í fyrsta skipti sem ég er í lausu lofti í tvo áratugi, segir Nanna sem segist ekki muna eftir neinu sérstöku atviki frá þessum tíma. Þetta hefur bara verið mjög skemmtilegt tímabil, útskýrir Nanna.
Matargúrúið segist ekki ætla að sitja með tvær hendur tómar en viðurkennir að hún ætli sér að taka sinn tíma í að íhuga hvað taki næst við. Fjölmörg spennandi tilboð hafi komið inná borð til sín en hún sé ákaflega þolinmóð. Ég er að þýða stóra matreiðslubók en meira er ekki fast í hendi, segir hún en viðurkennir að hana langi til að skrifa fleiri bækur um mat þannig að matgæðingar Íslands þurfa engu að kvíða þrátt fyrir brotthvarf hennar af Gestgjafanum.
Fróði flutti fyrir ekki margt löngu uppá Höfða eftir að hafa verið staðsett í nágrenni við miðbæ Reykjavíkur. Nanna segist því ekki eftir að sakna staðsetningarinnar sem slíkrar enda sé hún mikil miðbæjarmanneskja. Ég á hins vegar eftir að sakna alls þess góða fólks sem ég vinn með hér, segir hún.
Greint frá á visir.is
-
Keppni4 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Markaðurinn4 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun17 klukkustundir síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski



