Freisting
Nýir vefir
Vefsíðurnar www.veitingastadir.is og www.restaurants.is eru tveir nýir og spennandi vefmiðlar. Vefsíðurnar eru þær einu sem bæði innihalda nær alla veitingastaði á Íslandi og gera notendum kleift að leita á þægilegan hátt í þessum lista af veitingastöðum.
www.veitingastadir.is er ætluð sem heildarlausn fyrir Íslendinga, bæði einstaklinga og fyrirtæki, í leit að góðum matsölustað.
www.restaurants.is er ætluð ferðaskrifstofum, erlendum ferðamönnum og útlendingum búsettum á Íslandi í leit að góðum matsölustað.
Síðurnar voru fyrst og fremst hannaðar með það að leiðarljósi að auðvelt og fljótlegt yrði að finna veitingastaði við hæfi hvers og eins. Þannig er auðvelt að leita og flokka leitarniðurstöður eftir tegund staðar, matargerð, staðsetningu, verði og ýmsum aukavalkostum eins og hvort mynd fylgi staðnum á síðunni. Auk þess er hægt að leita eftir stöðum sem bjóða uppá heimsendingu og take-away. Veitingastaðir sem að bjóða uppá mateseðla á Internetinu eða eru með borðapöntun á netinu eru einnig merktir sérstaklega.
Á síðunum er opið álitskerfi þar sem notendur geta komið á framfæri áliti sínu á veitingastöðum byggðu á eigin reynslu. Þetta gerir öðrum notendum auðveldara að velja þá veitingastaði sem eru að fá góðar umsagnir frá notendum. Einnig er hægt að skoða ferskar uppskriftir á íslensku sem og á ensku, lesa umsagnir sérfræðinga og skoða myndaalbúm veitingastaða svo lítið eitt sé nefnt. Síðurnar eru alltaf með skemmtilega leiki á í hverri viku og gefa fjöldan allan af gjafakortum á veitingastaði.
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð



