Uncategorized
Vínin með jólamatnum

Það er að ýmsu að hyggja þegar vín eru valin með mat. Fólk vill að sjálfsögðu gera sérlega vel við sig í kring um hátíðarnar og er þá oftar en ekki bætt nokkrum krónum við í kaupin á vínunum með matnum. En hvernig vín passa með jólamatnum? Í þessu gildir sú einfalda regla að það vín sem maður vill drekka með matnum, og það vín sem manni líkar passar. Smekkur fólks er svo mismunandi að það er í raun ekki hægt að segja að eitt vín passi betur en annað. En er auðvitað gaman að reyna að hitta á vín sem passar með því sem á borð er borið.
Í örstuttu máli langar mig til að benda á nokkur vín sem ég held að passi vel með ákveðnum mat. Ég vil þó taka það fram að þetta er alls engin heilög sannindi og að smekkur minn þarf alls ekki að vera líkur þínum. Einnig hefur meðlætið og sósan mikil áhrif á heildar bragðið af matnum, þannig að mörgu er að hyggja
Ef við byrjum á villibráðinni, rjúpu, hreindýri og gæs þá má hiklaust mæla með vönduðum Bordeaux vínum til dæmis frá St. Emilion, Châteauneuf-du-Pape frá Rhône, góð Barolo vín frá Ítalíu og einnig Gran Reserve vín frá Rioja. Þessi vín koma öll frá gamla heiminum. Frá nýja heiminum má mæla með vönduðum Shiraz vínum frá Ástralíu og Cabernet Sauvignon vínum frá Chile og Kaliforníu.
Það getur verið snúið að velja vín með hamborgarhrygg svo vel sé. Salt og reykjarbragðið er erfitt vínum. Ég hef bæði prófað kröftugt Shiraz frá Ástralíu og kælt Beaujolais Nouveau. Bæði þóttu mér passa alveg ágætlega. Einnig hef ég, eftir að hafa lesið það eftir mæta menn, drukkið þykkan og góðan Tokay Piont Gris frá Alsace sem mér þótti koma sérlega vel út.
Kalkúnn verður væntanlega á borðum margra. Með honum passar vel til dæmis létt Pinot Noir frá Bandaríkjunum, Beaujolais Nouveau nú eða létt Tokay Pinot Gris frá Alsace.
Hangikjötið er lang erfiðast af þessu. Hægt væri að reyna það við kröftugan Gewürztraminer frá Alsace eða öflugasta víni gert úr Shiraz þrúgunni. En ég ætla nú samt að mæla bara með malti og appelsíni, hver og einn á sína sérstöku uppskrift af þeim eðaldrykk. Mér finnst til dæmis ómissandi að bæta smá kóki útí.
Og munum að hóflega drukkið vín gleður mannsins hjarta.
Heiðar Birnir Kristjánsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun20 klukkustundir síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn4 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Frétt7 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Keppni3 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Markaðurinn2 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð




