Sigurður Már Guðjónsson
Neysla á heilkornavörum getur lengt lífið
Niðurstöður tveggja rannsókna sem birtar voru nýlega renna enn frekari stoðum undir ráðlegginguna „Heilkorn minnst tvisvar á dag“.
Í júní síðastliðnum voru birtar niðurstöður rannnsóknar í ritrýnda tímaritinu British Medical Journal sem sýndu að neysla á heilkorni var tengd minni hættu á hjarta- og æðasjúkdómum, krabbameini og dauða af völdum fjölda sjúkdóma.
Niðurstöðurnar sýndu að þeir sem neyttu þriggja skammta af heilkornavörum á dag voru í 22% minni áhættu að fá hjarta- og æðasjúkdóma, heildar dánartíðni var 18% lægri, 14% lægri dánartíðni af völdum heilablóðfalls og 15% lægri dánartíðni af völdum krabbameins.
Mestur ávinningur sást hjá fólki þar sem neyslan jókst úr engri neyslu í tvo skammta af heilkornavörum á dag. Þetta jafngildir 60 g af heilkornavöru, t.d. tvær sneiðar af heilkorna brauði.
Rannsakendur við Harvard T.H. Chan School of Public Health birtu einnig í júní s.l. niðurstöður annarrar rannsóknar sem sýndu svipaðar niðurstöður og sú fyrri. Neysla á heilkorni getur minnkað hættu á ótímabærum dauða. Rannsóknin var birt á rafrænu formi í ritrýnda tímaritinu Circulation.
Niðurstöðurnar sýndu að heildardánartíðni þeirra sem neyttu þriggja skammta af heilkornavörum á dag var 20% lægri en hinna sem borðuðu lítið eða ekkert af heilkorni. Dánartíðni af völdum hjarta- og æðasjúkdóma var 22% lægri í þeim hópi og 15% lægri dánartíðni af völdum krabbameins.
Niðurstöðurnar í samræmi við íslenskar ráðleggingar
Þessar niðurstöður styðja eindregið við þær ráðleggingar sem eru í gildi hér á landi um að auka neyslu á heilkornavörum í að minnsta kosti tvo skammta á dag.
Í ráðleggingunum er fólk hvatt til að velja brauð eða aðrar matvörur úr heilkorni. Nota t.d. heilkorn í bakstur og grauta og bygg, hýðishrísgrjón og heilkornapasta sem meðlæti í stað fínunninna vara. Skráargatið og Heilkornamerkið geta aðstoðað við hollara val.
Greint frá á vef Landlæknis.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Markaðurinn22 klukkustundir síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Vín, drykkir og keppni24 klukkustundir síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn3 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir




