Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Icelandair Hotels byggir hágæðahótel á Landssímareitnum
Icelandair Hotels, dótturfélag Icelandair Group, og Lindarvatn ehf. skrifuðu í dag undir leigusamning til 25 ára um rekstur hágæðahótels í fyrrum höfuðstöðvum Landssímans við Austurvöll. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Nýja hótelið, sem enn hefur ekki hlotið nafn, verður 160 herbergja en ekki er enn ákveðið undir hvaða vörumerki rekstur hótelsins mun falla. Áætlað er að hótelið hefji rekstur sumarið 2017.
„Uppbygging hótela hér á landi hefur verið áberandi á undanförnum misserum, en fjölgun hótelherbergja í Reykjavík hefur engu að síður ekki náð að halda í við aukinn fjölda ferðamanna til borgarinnar. Icelandair Hotels standa í framkvæmdum víðar í Reykjavík, en það er markviss stefna félagsins að auka framboð hágæða gistirýmis í borginni. Slíkt er meðal annars nauðsynlegt til þess að borgin geti markaðssett sig sem ráðstefnuborg,“
segir í tilkynningunni sem birt er á vef Viðskiptablaðsins.
Samhliða undirritun leigusamingsins gekk Icelandair Group frá kaupum á 50% eignarhlut í Lindarvatni sem á fasteignina sem hótelið verður í auk annarra eigna á reitnum. Samtals eru eignirnar um 15 þúsund fermetrar en gert er ráð fyrir að hótelið verði um 11 þúsund fermetrar.
Eins og fram kemur að ofan er ekki búið að ákveða nafn á hótelinu en félagið hefur hins vegar sótt um einkaleyfisskráningu á nöfnunum Hotel Reykjavik Parliament og Hotel Iceland Parliament.
Tilkynning þessi er birt á vb.is.
Tölvuteiknuð mynd: Ask Arkitektar / reykjavik.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Frétt4 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn1 dagur síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanFerköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu
-
Markaðurinn1 dagur síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg




