Vertu memm

Keppni

Menu veitingar þrefaldur sigurvegari í chili keppni | Bollakökukeppni haldin í fyrsta sinn á opnum Degi á Ásbrú

Birting:

þann

Chili og Bollakökukeppni á opnum Degi á Ásbrú 2015

Það voru matreiðslunemar Menu veitingar þau Friðrik Alexandersson og Sigfríð Sjöfn Magnúsdóttir sem áttu heiðurinn af chili uppskriftunum.
Myndina tók Jóhann Páll Kristbjörnsson hjá Skissu

Á uppstigningadag 14. maí s.l., var haldið hið árlega karnival, sem heitir Opinn dagur á Ásbrú, og var þemað All American County Fair.

Karnival er skemmtileg hátíð þar sem almenningi býðst að koma „upp á völl“ og taka þátt í leikjum í básunum, kaupa amerískan varning, kíkja í draugahúsið, fljúga flugvél í flughermi, borða góðan mat og skemmta sér og öðrum.

Chili og Bollakökukeppni á opnum Degi á Ásbrú 2015

Fjölmennt var á opnum Degi á Ásbrú

 

Samhliða hátíðinni var haldin Chili keppni líkt og í fyrra og Bollukökukeppni, en það er Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi & Ásbrú sem á veg og vanda að undirbúningi á keppnunum.

Chili keppnin er haldin milli veitinga- og matvörufyrirtækja um “besta Chili con Carne,“ “besta Chili sin Carne“ (grænmetis) og “sterkasta Chili-réttinn.“ Þrír veitingastaðir tóku þátt í chili keppninni að þessu sinni, Menu veitingar, Kryddlegin hjörtu og Kaffi Duus.

Chili og Bollakökukeppni á opnum Degi á Ásbrú 2015

Friðrik Alexandersson og Sigfríð Sjöfn Magnúsdóttir hjá Menu veitingum

Chili sigurvegarar
Það var Menu veitingar sem sigraði í öllum flokkum og óskum við þeim innuilega til hamingju með þennan glæsilega sigur. Til gamans má geta að Menu Veitingar sigraði í fyrra á opnum Degi á Ásbrú með besta Chili sin Carne sterkasta chili réttinn.

Dómnefnd í Chili keppninni voru:
Friðrik Sigurðsson, fulltrúi Food & Fun, matreiðslumaður Utanríkisráðuneytisins.
Paul O´Friel, starfandi sendiherra sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi.
Kjartan Eiríksson, framkvæmdastjóri Kadeco.

Chili og Bollakökukeppni á opnum Degi á Ásbrú 2015

Bollakökukeppni

Chili og Bollakökukeppni á opnum Degi á Ásbrú 2015

Dómnefnd í Bollakökukeppninni

Bollakökukeppni
Í fyrsta sinn var haldin Bollakökukeppni á opnum Degi á Ásbrú og voru 20 mismunandi bollakökur skráðar í keppnina.

Verðlaunin fyrir bestu bollakökuna hlaut Alexandra Jóna Hermannsdóttir.
Verðlaunin fyrir frumlegustu bollakökuna hlaut Margrét Sól Torfadóttir.
Verðlaunin fyrir fallegustu bollakökuna hlaut Magdalena Akimowicz.

Dómnefnd í Bollakökukeppninni voru:
Jói Fel, bakari.
Grace O´Friel, eiginkona starfandi sendiherra sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi.
Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, matarbloggari.

 

Myndir: Smári

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið