Smári Valtýr Sæbjörnsson
Langbest og Menu veitingar í samstarf og buðu til alvöru þakkargjörðarhátíðar

Hluti af aðgangseyri rann í styrktarsjóð Sigvalda Arnars Lárussonar en hann hefur verið að safna peningum fyrir brýn málefni barna á Suðurnesjum. Á myndinni er f.v. Ingólfur hjá Langbest, Sigvaldi og Ási í Menu.
Þakkargjörðarhátíð eða Thanksgiving var haldin á Keflavíkurflugvelli eins lengi og Varnarliðið var hér á landi en lagðist af með brotthvarfi hersins. Ingólfur Karlsson og Helena Guðjónsdóttir á veitingastaðnum Langbest á Ásbrú ákváðu svo árið 2009 að endurvekja hefðina á sjálfan þakkargjörðardaginn, að því er fram kemur á vf.is.
Fyrsta árið mættu 100 manns í þakkargjörðarveislu en á síðasta ári voru matargestirnir orðnir 300 talsins og mikill fjöldi varð frá að hverfa. Það var því ljóst að gera þurfti ráðstafanir í ár miðað við þær vinsældir sem veislan er farin að njóta. Þakkargjörðarveislan í ár hefur því verið færð frá Langbest yfir í Officeraklúbbinn á Ásbrú.
Ingólfur hafði samband við Ásbjörn Pálsson veitingamann í Menu veitingum sem hefur Officeraklúbbinn á sínum snærum. Þeir hafa nú snúið bökum saman og buðu upp á þakkargjörðarveislu á fimmtudaginn 26. nóvember s.l. Það tíðkaðist á tímum Varnarliðsins að íslenskum fjölskyldum starfsmanna Varnarliðsins var boðið á völlinn á þakkargjörðardaginn þar sem slegið var upp veislu í Officeraklúbbnum og Messanum. Þangað mættu hundruð Keflvíkinga og Njarðvíkinga í kalkúnaveislu.
Ingólfur Karlsson kokkaði ofan í Varnarliðsmenn í tólf ár, bæði í Messanum og í Rockville. Þar komst hann yfir gamla og vinsæla uppskrift sem hann hefur haldið sig við æ síðan og var notuð í veislunni, segir á vf.is.
Þakkargjörðin er ein heilagasta hátíð Bandaríkjamanna og maturinn sem boðið er uppá er hátíðarmatur. Í grunninn er veislan byggð á kalkúnabringu. Einnig er í boði gljáð skinka og með þessu er boðið upp á sætar kartöflur með sykurpúðum. Þá er kartöflumús og tilheyrandi sósa og að sjálfsögðu fylling auk þess sem sultuð trönuber eru borin fram með matnum. Þá er hefð fyrir bökum ýmiskonar í eftirrétt.
Viðtal við Ingólf og Ásbjörn í vef TV Víkurfrétta:
Þakkargjörðarveislan sem haldin var í Officeraklúbbnum var hlaðborð þar sem fólk borgar eitt gjald við innganginn og getur svo borðað á sig gat. Þar var mikið af meðlæti og svo matreiðslumenn í sal sem voru að skera kalkúninn niður á diska fyrir fólk.
Verðinu var stillt í hóf eða 2950 kr. á mann, 7-12 ára greiða barnagjald og 6 ára og yngri fengu frítt. Þá fór hluti af aðgangseyri í söfnun Sigvalda Lárussonar fyrir börn.
Myndir: Jóhann Páll Kristbjörnsson hjá Skissu – Menu4u.is
Greint frá á vef Víkurfrétta vf.is.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Frétt4 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Frétt6 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Markaðurinn3 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Markaðurinn3 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur










