Freisting
Carlsberg lokar um helmingi brugghúsa sinna í Evrópu
Danska bjórframleiðslufyrirtækið Carlsberg, sem er hið fimmta stærsta í heimi, ætlar að loka 14 af 29 brugghúsum sínum í Evrópu, að því er talsmaður fyrirtækisins tilkynnti í dag. Ekki hefur enn verið ákveðið hvaða brugghúsum verður lokað og hvenær það verður gert.
Þá liggur ekki fyrir hversu mörg störf munu tapast. Jens Peter Skårup, talsmaður Carlsberg, sagði nauðsynlegt að gera starfsemi Carlsberg í Evrópu skilvirkari og þetta hefði í för með sér að loka yrði sumum verksmiðjum þess.
Í viðtali við viðskiptablaðið Børsen í dag segir Nils Smedegaard Andersen, framkvæmdastjóri Carlsberg, að líklega verði brugghús Carlsberg í Kaupmannahöfn hætt starfsemi eftir sex ár. Við getum ekki sagt til um hvað verður um önnur brugghús, sagði Skårup. Þau eru í níu öðrum Evrópuríkjum.
Carlsberg var stofnað árið 1847. Í dag starfa um 31.000 manns hjá fyrirtækinu. Carlsberg framleiðir um 74 milljónir bjórflaskna á degi hverjum. Stærstu markaðir fyrirtækisins eru í Evrópu og Asíu.
Greint frá í Morgunblaðinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Keppni21 klukkustund síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Markaðurinn1 dagur síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt1 dagur síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu


