Sverrir Halldórsson
Domino’s opnar stað í Noregi
Fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt hyggst opna Domino’s Pizza veitingastað í Osló, höfuðborg Noregs, í ágúst. Um er að ræða fyrsta Domino’s staðinn í landinu, en alls er ætlunin að opna fimmtíu slíka staði þar. Birgir Þór á og rekur Dominos á Íslandi. Fjallað er um málið á norska viðskiptavefnum E24.no.
Birgir Þór segir í viðtali við E24.no að staðirnir í Noregi verði eins konar sambland af hinu alþjóðlegu Dominoskonsepti og íslensku útgáfunni. Hráefnin muni koma frá Noregi, sem og starfsmennirnir, en á matseðlinum verði vinsælustu pizzurnar í Bandaríkjunum og hér á Íslandi.
Í fréttinni kemur jafnframt fram að Birgir Þór reki Dominos í Danmörku, Þýskalandi og á Íslandi, en eigi einnig réttinn á rekstrinum í bæði Svíþjóð og Finnlandi. Rifjað er upp að fyrsti Domino’s staðurinn í Danmörku hafi verið opnaður árið 1997 og að nú séu þar þrettán staðir.
Í frétt á mbl.is segir að Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans hf., seldi fyrirtækið Pizza-pizza ehf., sem er umboðsaðili Domino’s Pizza International á Íslandi, til hóps fjárfesta undir forystu Birgis Þórs Bieltvedt sumarið 2011. Birgir Þór stofnaði Pizza-pizza árið 1993 og kom að rekstri þess til ársins 2005.
Í tilkynningu á þeim tíma kom fram að söluverð alls hlutafjárins hafi verið 210 milljónir króna, en að auki hafi vaxtaberandi skuldir numið 350 milljónum króna, að því er fram kemur á mbl.is.
Greint frá á mbl.is
Mynd: aðsend
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNýr rekstraraðili tekur við Pakkhúsinu í Ólafsvík
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanÞráinn Freyr: „Það er alltaf spennandi að skapa eitthvað nýtt“
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Markaðurinn1 dagur síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMet slegið í London: Risastór tiramisu mældist yfir 440 metrar – Vídeó
-
Markaðurinn2 dagar síðanAirfryer rauðspretta á brioche sem svíkur engan
-
Starfsmannavelta6 klukkustundir síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur




