Vertu memm

Sverrir Halldórsson

Vestmannaeyjaferð – 2. kafli | Einsi Kaldi og Hótel Vestmannaeyjar

Birting:

þann

"....þustu eyjamenn í land og út að rútunum og minnti þetta á engisprettufaraldur."

„….þustu eyjamenn í land og út að rútunum og minnti þetta á engisprettufaraldur.“

Er við komum niður í Landeyjarhöfn, var það fyrsta sem ég tók eftir voru 8 stórar rútur tómar sem biðu á planinu, svo rann það upp fyrir mér að ÍBV var að fara að spila úrslitaleikinn í handbolta í Reykjavík og þegar Herjólfur lagðist að bryggju og búið að opna landganginn, þustu Eyjamenn í land og út að rútunum og minnti þetta á engisprettufaraldur.

F.v. Hörður Helgi Hallgrímsson matreiðslunemi, Gunnar Heiðar Gunnarsson matreiðslumaður og þjónarnir Valgerður Þorsteinsdóttir og Oddný Gunnarsdóttir

F.v. Hörður Helgi Hallgrímsson matreiðslunemi, Gunnar Heiðar Gunnarsson matreiðslumaður og þjónarnir Valgerður Þorsteinsdóttir og Oddný Gunnarsdóttir

Svo var hleypt um borð og hafði ég á orði við stýrimanninn að það yrði sjálfsagt rólegra út í Eyjar og brosti hann við því, landfestar leystar og siglingin hófst og 35 mínútum seinna lögðust við að bryggju í Eyjum, í land og tókum smá rúnt um plássið áður en við tókum að leita að hótelinu, sem að við fundum fljótlega. Á móti okkur tóku annar eigandi hótelsins Magnús Bragason, en kona hans er einnig eigandi og heitir hún Adda Jóhanna Sigurðardóttir, fann maður strax á hans framkomu að gestir væru velkomnir til hans, einnig tók á móti okkur matreiðslumaðurinn Gunnar Heiðar Gunnarsson, var ákveðið að við kæmum í veitingasalinn kl: 18.00 þar sem von var á 2 hópum stuttu seinna og var það ekkert mál, fórum upp á herbergi og komum okkur fyrir og í smáslökun.

Á tilsettum tíma vorum við mættir í salinn hjá Einsa Kalda og vísað til borðs, boðnir drykkir og svo hófst veislan.

Volgt brauð

Volgt brauð

Fyrst kom volgt brauð bakað á staðnum með þeyttu smjöri, mjög gott.

Réttur 1 Hafið og fjaran Skötuselur, steinbítur, humar, bláskel, loðnuhrogn, söl

Réttur 1
Hafið og fjaran
Skötuselur, steinbítur, humar, bláskel, loðnuhrogn, söl

Glæsileg framsetning, mjög bragðgóður, steinbíturinn helst til ofeldaður.

Réttur 2 Hrefna Steinseljurót, reyktur ricotta ostur, sesamfræ, engifer, soja, chilli (belgpipar), dill

Réttur 2
Hrefna
Steinseljurót, reyktur ricotta ostur, sesamfræ, engifer, soja, chilli (belgpipar), dill

Aftur er það stórglæsileg framsetning, bragðið spilaði vel saman, en samt var hrefnubragðið sterkast, gæti vel hugsað mér að borða þennan rétt aftur.

Réttur 3 Hraun-bráðnun-ís Smjörbrauð, camembert ostur, granatepli, límóna, lavanderís

Réttur 3
Hraun-bráðnun-ís
Smjörbrauð, camembert ostur, granatepli, límóna, lavanderís

Þessi réttur kom skemmtilega á óvart, bragð sem biður um að vera borðað.

Réttur 4 Humarsúpa Einsa kalda Með grilluðum humarhölum

Réttur 4
Humarsúpa Einsa kalda
Með grilluðum humarhölum

Þessi var alvöru bisk, kröftugt bragð og mjög gott.

Réttur 5 Skötuselur og reykýsa Steinseljurót, bankabygg, parmaskinka, jurtamauk, brennt smjör, mandarínur, vínber

Réttur 5
Skötuselur og reykýsa
Steinseljurót, bankabygg, parmaskinka, jurtamauk, brennt smjör, mandarínur, vínber

Óvenjuleg samsetning, en smakkaðis alveg prýðilega.

Réttur 6 Nautakinn og lambahryggur Béarnaise bökuð kartafla, gljáðir laukar, sinnep, paprika, blóðbergsósa

Réttur 6
Nautakinn og lambahryggur
Béarnaise bökuð kartafla, gljáðir laukar, sinnep, paprika, blóðbergsósa

Þessi réttur var svolítið dökkur á diski, en bragðið sveik engan, og er það ekki aðalatriðið?

Réttur 7 Snickerskaka Hnetustykki, súkkulaðiís, hindber, hnetusnjór

Réttur 7
Snickerskaka
Hnetustykki, súkkulaðiís, hindber, hnetusnjór

Mér var á orði að mér fyndist þetta líkjast frekar Toblerone og um nóttina kveikti ég á hvað vantaði, það var salthnetur, en enga síður góður eftirréttur.

Þetta var virkilega skemmtileg máltíð, þjónustan ljúf, en samt ákveðin, kokkarnir komu inn og útskýrðu alla réttina þó svo að staðurinn væri fullur og setur það alltaf flottan svip á salinn ef cheffinn er í salnum.

Þökkuðum við pent fyrir okkur og komum við í lobbýinu til að taka birgðir af bensíni upp á herbergi.

 

Fleira tengt efni:

 

/Sverrir

twitter og instagram icon

 

† 1956-2015 | Sverrir er matreiðslumeistari, en hann lærði matreiðslu á Hótel Sögu og var við nám í hótelstjórnun í Álaborg. Hann hefur starfað mjög víða, m.a. á veitingastöðum í Englandi og Danmörku. Einnig á stöðum hér heima, m.a. Hótel Sögu, Óperu, Holliday Inn, Ránni og Þotunni í Keflavík, Fossnesti á Selfossi. Sverrir er beinskeyttur, opinskár og harðsoðinn penni.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið