Markaðurinn
Hittu Dineout á Stóreldhúsinu
Dineout tekur þátt í Stóreldhúsinu í Laugardalshöll dagana 5.–6. nóvember, frá kl. 12:00 til 18:00 báða dagana. Aðgangur er ókeypis og við hlökkum til að taka á móti gestum, kynna lausnirnar okkar og ræða hvernig við getum einfaldað daglegan rekstur í veitingageiranum.
Dineout er íslenskt hugvit sem hefur frá árinu 2017 þróað hugbúnaðarlausnir fyrir veitingastaði og þjónustufyrirtæki. Lausnirnar tengja saman ólíka þætti rekstrarins, auka yfirsýn og hjálpa starfsfólki að veita gestum enn betri þjónustu.
Á staðnum gefst þér tækifæri til að kynnast meðal annars borðabókunum, kassakerfi, sjálfsafgreiðslukössum, QR-pöntunum og gjafabréfalausnum Dineout. Við sýnum hvernig lausnirnar vinna saman og hvernig hægt er að laga þær að þörfum ólíkra staða — allt frá litlum kaffihúsum til stórra veitingastaða og mathalla.
Kíktu við hjá okkur, prófaðu lausnirnar og spjallaðu við teymið um tækifærin í þínum rekstri. Við hlökkum til að sjá þig!
Ef þú rekur veitingastað og hefur áhuga á að bóka fund er best að senda tölvupóst á [email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn4 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn4 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn4 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn6 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar6 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




