Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Gestir stjórna gröfum á meðan þeir borða og drekka

Birting:

þann

The Pit Victoriei

Fjarstýrður vörubíll á sérútbúnu framkvæmdasvæði The Pit, þar sem gestir geta prófað ýmsar vinnuvélar.
Mynd: Facebook / The Pit Victoriei

Óvenjulegur veitingastaður í Búkarest í Rúmeníu hefur vakið athygli fyrir skemmtilega blöndu af mat, drykkjum og fjarstýrðum vinnuvélum.

Veitingastaðurinn heitir The Pit Victoriei og er staðsettur við Calea Victoriei í miðborg Búkarest. Þar er framkvæmdasvæði aðalþema staðarins og geta gestir meðal annars stjórnað fjarstýrðum gröfum, vörubílum og öðrum vinnuvélum á sérútbúnu litlu byggingarsvæði.

The Pit lýsir hugmyndinni sem samspili afþreyingar, matar og drykkja þar sem gestir geta sest niður yfir máltíð eða drykk og um leið prófað sig áfram á vinnuvélunum.

Slagorð staðarins er einfalt og lýsandi: „Dig. Eat. Drink.“

Framkvæmdasvæði með mat á borðum

Útlit staðarins tekur mið af framkvæmdasvæði og segir The Pit sjálft að þar séu borð innan um vinnuvélar og ýmiss konar búnað sem tengist byggingarframkvæmdum.

Á matseðlinum eru meðal annars eggjaréttir og samlokur auk matarmikla rétti. Þar má nefna Fire Pit Brisket, hægeldað nautakjöt með frönskum kartöflum og hrásalati, og Worksite Feast, rifið svínakjöt með frönskum kartöflum og súrsuðu grænmeti.

Veitingastaðurinn leggur mikla áherslu á að heimsóknin sé upplifun fremur en hefðbundin ferð út að borða.

Gestir geta meðal annars stjórnað litlum fjarstýrðum gröfum og vörubílum á meðan þeir njóta matar, kaffis, kokteila eða annarra drykkja.

The Pit Victoriei er opinn alla daga og hefur hugmyndin þegar vakið athygli gesta, enda ekki á hverjum degi sem hægt er að grípa í fjarstýrða gröfu á milli rétta.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by thepit (@thepitvictoriei)

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss Stóreldhúsið 2026
Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið