Frétt
Veitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
Slökkviliðið á Akureyri var kallað út laust fyrir klukkan 8.30 í morgun vegna elds á efstu hæð Alþýðuhússins við Skipagötu 14.
Samkvæmt frétt RÚV kviknaði eldur í millivegg við veitingastaðinn Strikið. Starfsmaður varð eldsins var og náði að ráða niðurlögum hans að mestu áður en slökkviliðið kom á vettvang.
Slökkviliðsmenn opnuðu vegginn og slökktu í þeim glæðum sem eftir voru. Húsið var rýmt á meðan á aðgerðum stóð en ekki reyndist þörf á að reykræsta það.
Aðgerðum lauk skömmu eftir klukkan 9.
Vigfús Ólafur Bjarkason, varðstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar, sagði í samtali við RÚV að skjót viðbrögð starfsmannsins hefðu skipt höfuðmáli.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Áhugavert1 dagur síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Markaðurinn5 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Markaðurinn5 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Markaðurinn3 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Frétt3 dagar síðanRannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið




