Markaðurinn
Dineout kynnir nýja klippikortalausn fyrir veitingastaði
Dineout býður nú upp á klippikortalausn sem gerir veitingastöðum kleift að selja stafræn klippikort fyrir valdar vörur og rétti. Lausnin er hönnuð til að auka endurkomur gesta, skapa fyrirframgreiddar tekjur og byggja upp tryggð við viðskiptavini.
Með klippikortum geta veitingastaðir útbúið sérsniðin tilboð sem henta þeirra rekstri, hvort sem um er að ræða hádegisverð, kvöldverð, hamborgara, sushi, bjór, vín eða aðrar vinsælar vörur. Rekstraraðilar velja sjálfir hvaða vörur fara á kortið og hvernig tilboðið er sett upp.
Klippikortin eru stafræn og vistast beint í Apple Wallet eða Google Wallet, þannig að gestir hafa þau alltaf við höndina þegar þeir heimsækja staðinn.
„Við þróuðum klippikortin með það að markmiði að gera rekstraraðilum auðvelt að verðlauna reglulega gesti og hvetja til endurtekinna heimsókna. Lausnin er sveigjanleg og hægt er að aðlaga hana að hverjum stað og vöruframboði,“
segir Inga Tinna Sigurðardóttir, framkvæmdarstjóri Dineout.
Lausnin hentar fjölbreyttum rekstri, allt frá fínni veitingastöðum og börum yfir í take away staði og kaffihús. Hægt er að sérsníða hvert klippikort að vöruframboði hvers staðar og aðlaga það að mismunandi markhópum.
Áhugasamir geta bókað stuttan fund með söluteymi Dineout og fengið tillögu að klippikorti sem hentar þeirra vöruframboði hér.
-
Keppni7 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn4 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Markaðurinn2 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Frétt3 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku




