Frétt
Nóróveira greinist í frosnum ostrum frá Surasang
Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af Surasang frosnum ostrum sem Dai Phat flytur inn og selur í sinni verslun vegna nóróveiru. Fyrirtækið hefur i samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.
Tilkynningin barst til Íslands í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu á Íslandi:
- Vörumerki: Surasang
- Vöruheiti: Frozen oyster (I.Q.F)
- Geymsluþol: Best fyrir 25.04.2027
- Lotunúmer: 26.04.2025
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Nettómagn: 226 g
- Innflytjandi: Dai Phat Iceland ehf., Faxafen 14, 108 Reykjavík
- Dreifing: Dai Phat Asian Supermarket, Faxafen 14, 108 Reykjavík
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.
Mynd: mast.is
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn1 dagur síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember




