Frétt
Nói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
Nói Síríus hefur lækkað verð á öllum súkkulaðivörum sínum um 10 prósent. Verðlækkunin nær jafnt til innlendra og erlendra vörumerkja fyrirtækisins.
Undanfarin ár hafa verið fordæmalaus í verðlagningu á hrávöru til súkkulaðiframleiðslu. Þurrkar og erfið ræktunarskilyrði á helstu kakósvæðum heimsins héldu heimsmarkaðsverði á kakói og kakósmjöri í sögulegum hæðum, sem kallaði á verðhækkanir hjá framleiðendum víða um heim. Nú hefur dregið úr þessum þrýstingi samhliða auknu framboði, og það ásamt hagræðingu og bættum framleiðsluferlum hjá Nóa Síríus skapar svigrúm til að lækka verð.
„Þegar hrávöruverð hækkaði lögðum við mikið á okkur til að mæta auknum kostnaði með hagræðingu, breyttum verkferlum og stöðugum samskiptum við birgja og viðskiptavini. Það varð til þess að verð hjá okkur hækkaði minna en sem nam breytingum á heimsmarkaðsverði. Nú þegar verð á helsta hráefninu í framleiðslunni er stöðugra viljum við stíga fyrstu skref í að skila ávinningi áfram til viðskiptavina,“
segir Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Sirius í tilkynningu.
Sjóðurinn AF3, sem er í rekstri Alfa Framtaks, keypti fyrr á árinu allt hlutafé í Nóa Síríusi af Orkla Snacks. Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaupin og hefur Nói Síríus því færst aftur í innlenda eigu. Um er að ræða eitt rótgrónasta framleiðslufyrirtæki landsins sem á sér rúmlega aldarlanga sögu.
Mynd: noi.is
-
Markaðurinn6 dagar síðanSuperMeals heldur áfram að þróast: kiosk-lausn tilbúin og símaveski á loka metrum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanVölundur Snær opnar nýjan veitingastað í sveitinni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Markaðurinn2 dagar síðanInnnes hefur samstarf við þýskan mjólkurrisa
-
Markaðurinn3 dagar síðanSvona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima
-
Frétt1 dagur síðanAlþingi samþykkir róttækar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins
-
Markaðurinn5 dagar síðanNýtt KEA skyr sækir innblástur í einn þekktasta eftirrétt heims



