Keppni
Jakob Alf stóð uppi sem sigurvegari
Kokteilakeppni veitingastaðarins OTO Restaurant og 818 Tequila fór fram 31. mars síðastliðinn við góðar undirtektir. Keppnin var vel sótt og vakti athygli, en þar komu saman tíu keppendur sem öttu kappi í sköpun, bragðsamsetningu og framsetningu kokteila.
Kynnir kvöldsins var Gústi B, sem leiddi dagskrána og hélt uppi líflegri stemningu meðal gesta.
Það var Jakob Alf á Veður sem bar sigur úr býtum með kokteilinn Apple Bottom Beans. Hann þótti skara fram úr fyrir frumleika og vel útfært jafnvægi í bragði.
Í öðru sæti hafnaði Daniel Kava frá Sushi Social, en þriðja sætið hlaut Svanhvít, einnig frá Veður.
Samkvæmt skipuleggjendum endurspeglaði keppnin þann metnað og sköpunargleði sem einkennir íslenska kokteilamenningu um þessar mundir. Gæði keppenda voru sögð afar jöfn og samkeppnin hörð.
Viðburðurinn var haldinn í samstarfi 818 Tequila og veitingastaðarins OTO á Hverfisgötu.
Myndband frá líflegu kokteilakvöldi hér.
Myndir og vídeó: aðsent
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni6 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt7 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Frétt2 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað





