Keppni
Dublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
Í kvöld fara fram úrslitin í Jameson kokteilakeppninni Dublin Meets Reykjavík á nýrri og endurbættri efri hæð barsins The Dubliner. Þar mætast tíu barþjónar sem tryggðu sér sæti í úrslitum eftir undankeppni sem fram fór fyrr í vikunni.
Alls tóku 18 barþjónar þátt í undankeppninni, en aðeins tíu þeirra komust áfram og munu keppa um sigurinn í kvöld.
Keppendur í úrslitum eru:
Andri Davíð frá Viceman
Auður Gestsdóttir frá Jungle
Guðjón Steinn frá Daisy
Heimir Morthens frá Drykk
Hrafnkell Ingi frá Skál
Ísar Bjarki frá Sushi Social
Jakob Alf frá Veður
Ragnar Erluson frá Lóla
Róbert Aron Proppé frá Drykk
Svanhvít Thea frá Veður.
Húsið opnar klukkan 19.00 og verður fordrykkur í boði fyrir gesti. Keppnin sjálf hefst stundvíslega klukkan 20.00.
Samhliða keppninni verða sérstök tilboð á barnum og að sögn skipuleggjenda er gestum lofað alvöru írskri stemningu þegar barþjónar Reykjavíkur etja kappi í kokteilalistinni.
Meðfylgjandi myndir eru frá undankeppninni sem að Ómar Vilhelmsson tók.
View this post on Instagram
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði




















