Starfsmannavelta
Breskur fjárfestir eignast allt hlutafé í lúsushótelinu Höfði Lodge á Grenivík

Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein við Þengilhöfða á Grenivík árið 2021, þegar uppbygging Höfða Lodge var á fullu skriði. Í baksýn má sjá Eyjafjörð og fána Viking Heliskiing, en þeir hafa nú keypt til baka hlut sinn í þyrluskíðafyrirtækjunum og hyggjast einbeita sér að þeim rekstri.
Breski veðmálajöfurinn James Russell DeLeon, jafnan kallaður Russ DeLeon, hefur eignast allt hlutafé í lúxushótelinu Höfði Lodge sem er í uppbyggingu á Þengilhöfða við Grenivík. Þetta kemur fram í umfjöllun Vísis.
Samkvæmt Vísi seldu fyrrverandi skíðakapparnir Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein hinn 2. febrúar síðastliðinn 50,01 prósenta hlut sinn í félaginu til DeLeons, sem fyrir átti 49,99 prósent. Með kaupunum er hann því orðinn eini eigandi hótelsins.
„Við ákváðum að fara aðrar leiðir, og þeir aðrar leiðir. Þannig að við skildum bara í góðu,“
segir Björgvin í samtali við Vísi.
Hótelið er um sex þúsund fermetrar að stærð og átti upphaflega að opna árið 2022. Opnun hefur þó tafist um fjögur ár og stefnt er að því að taka á móti fyrstu gestum í haust. Þar er gert ráð fyrir 40 herbergjum, allt að 180 fermetrum hvert, og er markhópurinn efnameiri ferðamenn. Áhersla hefur verið lögð á þyrluskíði og til stóð að bjóða upp á golfhermi samhliða annarri afþreyingu.
Framkvæmdir hafa verið umfangsmiklar enda stendur hótelið ofan við um 50 metra háan klettavegg á Þengilhöfða og leggja þurfti nýjan veg að byggingunni. Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps, segir í samtali við Vísi að mannvirkið sé nú farið að taka á sig skýra mynd. Unnið sé að frágangi innanhúss og tengingum við lagnir eftir að framkvæmdir gengu hægar en vonast var til á síðasta ári.
Árið 2024 tapaði félagið sex milljónum króna. Höfði Lodge ehf. er í eigu Höfða Icelandic Adventures sem DeLeon á nú að fullu í gegnum lúxembúrgíska félagið Illidor, samkvæmt umfjöllun Vísis.
Stöð 2, nú Sýn, fjallaði um uppbygginguna árið 2023:
Björgvin og Jóhann hafa hins vegar keypt til baka allan sinn hlut í skíðaferðafyrirtækjunum Viking Heliskiing og Scandic Guides og hyggjast einbeita sér að þeim rekstri á ný.
DeLeon varð auðugur á veðmálasíðunni PartyPoker sem hann stofnaði árið 2001 ásamt þáverandi eiginkonu sinni, Ruth Parasol. Árið 2005 var hann á lista Forbes yfir 400 ríkustu menn Bandaríkjanna. Hann er bandarískur ríkisborgari, nam lögfræði í Bandaríkjunum og á lögheimili á Gíbraltar. Í dag starfar hann sem fjárfestir, einkum á sviði fasteigna og tækni.
Uppbygging Höfða Lodge hefur vakið athygli frá upphafi og verður fróðlegt að sjá hvort loksins takist að opna þetta metnaðarfulla fimm stjörnu hótel við sjávarsíðuna í Eyjafirði síðar á árinu, eins og stefnt er að.
Myndir: hofdilodge.com
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni7 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta





