Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Lúxushótelið Höfði Lodge opnar við Grenivík í Eyjafirði

Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein hefja byggingu á lúxushóteli á Þengilhöfða í Eyjafirði
Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein, fyrrverandi landsliðsmenn á skíðum og eigendur Viking Heliskiing og Scandic Guides, eru komnir vel af stað með risaverkefni í heilsársferðaþjónustu.
Í samstarfi við erlenda fjárfesta þá eru þeir að hefja byggingu á glæsilegu lúxus hóteli rétt við Grenivík í Eyjafirði, að því er fram kemur í Vikublaðinu á Akureyri.
Hótelið, sem hefur fengið nafnið Höfði Lodge, verður 5500 fm. að stærð með 40 herbergjum, þar af fjórum svítum, ásamt bar, veitingastað, heilsurækt, funda- og ráðstefnusal og allri annarri þjónustu.
Í samtali við Vikublaðið segir Björgvin að verkefnið gangi vel en vegaframkvæmdir að fyrirhuguðu hótelinu eru hafnar.
„Þetta gengur mjög vel, við erum bara að klára veginn núna og sprengjum klöppina vonandi núna í næstu viku,“
segir Björgvin.
Hótelið mun rísa fyrir ofan 50 metra háan klettavegg á Þengilhöfða sem gengur út í austanverðan Eyjafjörðinn. Þaðan er útsýnið stórbrotið samspil milli hafs og fjalla, með óhindrað útsýni til mynnis Eyjafjarðar og yfir á Tröllaskagann. Björgvin dregur heldur ekkert undan þegar hann segir að þeir félagarnir hafi fundið besta staðinn í Evrópu til að reisa hótel.
Tölvuteiknaðar myndir: hofdilodge.com
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni2 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði






