Viðtöl, örfréttir & frumraun
Matur, hönnun og framtíðarsýn í brennidepli á Húsavík
HönnunarÞing, árleg hátíð hönnunar og nýsköpunar á Húsavík, fer fram dagana 26. – 27. september með ríkulegri dagskrá þar sem áherslan er á mat og fjölbreytt samspil hönnunar og matargerðar.
Á meðal dagskrárliða má finna umfjöllun um heitreikta grásleppu, nýstárlegar leiðir til að nýta hrogn, samfélagsgróðurhús í hafi, lífgas- og áburðarverksmiðjur, skordýraprótein, sniglarækt og ekki síst villiöl og bragð landslagsins. Þá verður einnig velt upp spurningunni hvort stökkfiskur eigi erindi á borð landsmanna og hvort hægt sé að borða flugelda.
Eitt af stóru nöfnum ráðstefnunnar er Jody Eddy, bandarískur matreiðslumeistari, rithöfundur og blaðamaður sem hefur skrifað fyrir virt tímarit á borð við The New York Times, Saveur og Food & Wine. Hún hefur starfað á Michelin veitingastöðum á borð við Jean-Georges í New York og The Fat Duck í Englandi.
Jody hefur lagt sérstaka áherslu á menningarlega þætti matarins og matreiðslu sem samfélagslega upplifun og hlotið alþjóðleg verðlaun fyrir verk sín, meðal annars IACP Judge’s Choice fyrir bók sína sem hún skrifaði með Gunnari Karli Gíslasyni, North: The New Nordic Cuisine of Iceland.
Jody Eddy flytur tvö erindi á HönnunarÞingi, annars vegar um hönnunarklúður í matreiðslubókum og hins vegar um heilaga hönnun og mat.
Veitingastaðir á Húsavík munu leggja sitt af mörkum og bjóða upp á nýja rétti sérstaklega í tilefni hátíðarinnar. Gestum er ráðlagt að panta borð tímanlega þar sem mikil eftirspurn er yfir hátíðina.
Flest erindi verða túlkuð á staðnum þannig að bæði íslenskumælandi og enskumælandi þátttakendur geti notið. Aðgangur er frír að flestum dagskrárliðum, þó er hvatt til skráningar til að auðvelda skipulag, en einnig verður hægt að mæta á staðinn án skráningar.
HönnunarÞing lofar að verða fjölbreyttur vettvangur þar sem hönnun, nýsköpun og matarmenning mætast á lifandi hátt. Þeir sem hyggjast dvelja alla hátíðina er bent á að bóka gistingu tímanlega, en þegar er farið að fækka herbergjum á Fosshótel Húsavík.
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn1 dagur síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember





