Freisting
Norðursjálenskur veitingastaður í eigu Íslendinga brann

Veitingastaður í eigu íslensks pars í bænum Rågeleje á Norður-Sjálandi varð fyrir miklum skemmdum í gærkvöldi þegar eldur kom upp í honum. Slökkvilið náði þó að hefta útbreiðslu eldsins svo aðeins eldhúsið brann og er það gjörónýtt.
Søstjernen heitir veitingastaðurinn en hann höfðu þau Albert Egilsson og Sigyn Oddsdóttir nýlega opnað á grunni eldri veitingastaðar. Vefmiðillinn Nordkysten segir frá því að eldurinn hafi kviknað skömmu eftir lokun staðarins og hafi starfsfólkið verið að fá sér að borða. Allir komust þó óskaddaðir út og var slökkvilið um átta og hálfa mínútu á staðinn.
Nordkysten segir að ekki hafi tekið langan tíma að ráða niðurlögum eldsins og sé það lán í óláni að aðeins eldhúsið hafi brunnið en ekki allt húsið en þau urðu örlög staðarins sem áður stóð á sama stað. Óvíst er hvenær hægt verður að opna staðinn á ný en ferðamannatíminn er um það bil að hefjast og tímasetningin því eins slæm og hugsast getur.
Ekki náðist í þau Albert og Sigyn við vinnslu fréttarinnar.
Það var Atli Steinn Guðmundsson sem skrifaði þessa frétt sem birtist á Visir.is
Uppfært: 01. maí. 2008 18:26
Ætla að opna Søstjernen aftur á laugardag
Við ætlum að opna aftur á laugardaginn,“ sagði Albert Egilsson, veitingamaður á Søstjernen á Norður-Sjálandi sem skemmdist í eldi í gærkvöldi.
Við erum komin með ferðaeldhús í gámi sem stendur fyrir utan staðinn og notum það á meðan verið er að hreinsa til,“ útskýrði Albert. Hann sagði starfsfólk tryggingafélags nú vera að meta tjónið og að öllum líkindum fengist tjónið bætt. Ekki væri enn ljóst um eldsupptök en slökkvilið ynni að rannsókn á þeim.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Uppskriftir6 dagar síðanAurore hjá Sweet Aurora deilir uppskrift með lesendum veitingageirans
-
Markaðurinn6 dagar síðanEyjó og Dóri mættu með afmælisköku – Hafið fagnar tímamótum
-
Keppni6 dagar síðanKokkur ársins 2026 og Grænmetiskokkur ársins 2026 fara fram í IKEA í mars
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Frétt5 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Frétt4 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki




