Frétt
735 milljóna króna rekstrarhagnaður Íslandshótela fyrir afskriftir fyrstu sex mánuði ársins
Rekstrarhagnaður Íslandshótela fyrir afskriftir (EBITDA) var 735 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins samkvæmt samstæðuárshlutareikningi félagsins en var 1.290 milljónir á sama tímabili á síðasta ári. Tap varð af rekstrinum sem nam 1.201 milljónum króna og má að mestu rekja það til kjarasamningshækkana og hás vaxtastigs hérlendis og erlendis.
Í tilkynningu kemur fram að tekjur félagsins á fyrri helmingi ársins eru til samræmis við tekjur sama tímabils í fyrra en gistinætur voru 5% færri milli tímabila.
„Íslandshótel standa sterk eins og efnahagsreikningurinn sýnir en ýmsir ytri þættir hafa haft sín áhrif. Má þar nefna kjarasamningshækkanir og vaxtastigið sömuleiðis. Gistinóttum hefur fækkað, spár um fjölda ferðamanna hafa ekki alveg gengið eftir og það er einnig ljóst að eldsumbrotin á Reykjanesi hafa haft áhrif.
Við höldum áfram að sýna skynsemi í rekstri, starfsmannahópur okkar er öflugur og skýr og umhverfisvæn stefna okkar skilar sínu hjá ferðamönnum sem eru æ meðvitaðri um mikilvægi þess þáttar við val á gistingu.
Við horfum því bjartsýn fram á veg,“
segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela.
Samstæðuárshlutareikningur Íslandshótela var sendur Kauphöll Íslands sem hægt er að skoða með því að
smella hér.
Íslandshótel er leiðandi afl í íslenskri ferðaþjónustu og rekur 17 hótel með 1955 herbergi á lykilstaðsetningum um land allt. Fyrirtækið er styrk stoð í þessari sívaxandi atvinnugrein og mun halda áfram að vera fyrsti valkostur þeirra sem velja hótelgistingu á Íslandi.
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði





