Smári Valtýr Sæbjörnsson
Vínveitingaleyfi í fyrsta sinn á Kaffivagninum
Eins og greint hefur verið frá þá urðu eigandaskipti á Kaffivagninum og nýir eigendur eru veitingahjónin Guðmundur Viðarsson matreiðslumeistari og Mjöll Daníelsdóttir.
Kaffivagninn var stofnaður 1935 af Bjarna Kristjánssyni þá var Kaffivagninn á vörubíl þar sem vörubíllinn var yfirbyggður pallur og stóð á horni á Pósthússtræti og Tryggvagötu sem var kallað Ellingsensplanið.
Snemma á sjötta áratugnum var Kaffivagninn fluttur vestur á Grandagarð og keypti Guðrún Ingólfsdóttir vagninn og rak hann ein til 1960, þá kom Ásta Thorarensen sem meðeigandi Guðrúnar. Árið 1982 seldu þær Guðrún og Ásta Kaffivagninn Stefáni Kristjánssyni og rak hann vagninn ásamt fjölskyldu sinni til 1. október 2013 eftir 31 árs rekstur.
Selja þau Kaffivagninn Guðmundi Viðarssyni og Mjöll Daníelsdóttir og skemmtilegt er að segja frá því að Kaffivagninn er enn í fjölskyldu tengslum, því Stefán er móður bróðir Mjallar.
Kaffivagninn er elsti veitingarstaður á Íslandi sem er enn í rekstri og eru Guðmundur og Mjöll fjórðu eigendur af Kaffivagninum.
Það hafa orðið skemmtilegar breytingar og ein af þeim er að í fyrsta skipti er vínveitingaleyfi komið á Kaffivagninn og eins erum við komin inn á tuttugustu öldina með kaffitegundir með Te og kaffi. Við verðum á léttari nótunum en lögð verður áhersla á léttvín og líkjöra með kaffinu og nú fyrir jólin er að sjálfsögðu hægt að fá snafsa
, sagði Mjöll Daníelsdóttir hress í samtali við veitingageirinn.is aðspurð um vínveitingaleyfið.
Mynd: Sigurjón Ragnar

-
Keppni4 dagar síðan
Þessir fimm keppa til úrslita um titilinn Kokkur ársins 2025 – Grænmetiskokkur ársins fer fram á morgun
-
Keppni2 dagar síðan
Fréttavaktin: Kokkur ársins 2025
-
Keppni2 dagar síðan
Gabríel Kristinn Bjarnason er Kokkur ársins 2025
-
Keppni5 dagar síðan
Fréttavaktin: Forkeppni um Kokk ársins 2025
-
Keppni3 dagar síðan
Stóra stundin runnin upp – Úrslitakeppni Kokkur ársins 2025 fer fram í dag – Myndaveisla frá forkeppni Kokkur ársins og Grænmetiskokkur ársins
-
Keppni4 dagar síðan
Fréttavaktin: Grænmetiskokkur ársins 2025
-
Keppni4 dagar síðan
Landslið kjötiðnaðarmanna komið til Parísar – Heimsmeistaramótið framundan
-
Keppni2 dagar síðan
Andrés Björgvinsson er Gænmetiskokkur ársins 2025