Markaðurinn
Glæsileg sýning í Höllinni
STÓRELDHÚSIÐ 2026 verður haldin í Laugardalshöll 5. – 6. nóvember 2026
STÓRELDHÚSIÐ hefur verið haldið annað hvert ár síðan 2005.
Sýningarnar hafa stækkað og eflst ár frá ári. Er STÓRELDHÚSIÐ orðið helsti staður fyrir starfsfólk stóreldhúsa að hittast og skoða vörur og þjónustu sem hinir fjölmörgu byrgjar hafa upp á að bjóða.
Öllu starfsfólki stóreldhúsa er boðið á sýninguna.
Að sögn Ólafs sýningarstjóra stefnir í öfluga sýningu í haust í Laugardalshöllinni.
Gefum Ólafi orðið:
„Sýningin “STÓRELDHÚSIÐ 2026 verður bæði fjölbreytt og afar áhugaverð. Það virðist mikil gróska sé á þessu sviði enda stóreldhúsageirinn fjölbreyttur og nær yfir vítt svið til veitingahúsa, mötuneyta og raunar miklu víðar þar sem matur er framreiddur.
Við höfum heyrt frá stóreldhúsum víða að af landinu. Þannig er greinilegt að mikill áhugi er að skoða allt það nýjasta í geiranum og hittast í Laugardalshöllinni. Stóreldhúsageirinn er í miklu uppáhaldi hjá okkur hjá okkur í fagsýningarfyrirtækinu Ritsýn enda er matur manns gaman.”
Sagði Ólafur að lokum.
STÓRELDHÚSIÐ 2026 hefst fimmtudaginn 5. nóvember og lýkur föstudaginn 6. nóvember. Sýningin hefst klukkan 12.00 báða dagana og lýkur klukkan 18.00.
Sem fyrr verður sýningin í Laugardalshöllinni sem er afar gott sýningarhúsnæði og þægileg aðkoma. Allt frítt fyrir starfsfólk stóreldhúsa enda fagsýning sem er ekki opin almenningi.
Kæra starfsfólk stóreldhúsageirans nú er um að gera að taka dagana frá!
Velkomin á STÓRELDHÚSIÐ 2026.
Sjáumst öll í haust,
Ólafur M. Jóhannesson
Sýningarstjóri STÓRELDHÚSIÐ 2026
[email protected] 698 8150
Inga
Markaðsstjóri
[email protected]
898 8022
-
Markaðurinn5 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn6 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni4 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt2 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“




