Markaðurinn
Viltu starfa sem kokkur hjá Fosshóteli Reykholti?
Ertu að leita þér að skemmtilegri vinnu í dínamísku og alþjóðlegu umhverfi? Fosshótel Reykholt óskar eftir að ráða kokk í eldhústeymið sitt. Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.
Starfssvið
Umsjón, skipulagning og þátttaka í matreiðslu og bakstri.
Frágangur og geymsla á matvælum.
Eftirlit með hreinlæti, HACCP.
Aðstoð við innkaup og birgðaumsjón.
Aðkoma að gerð matseðla í samráði við yfirmann.
Hæfniskröfur
Menntun í matreiðslu kostur en ekki skilyrði.
Reynsla af sambærilegum störfum er skilyrði.
Góð færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
Frumkvæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum.
Öryggisvitund og þekking á HACCP kostur.
Húsnæði í boði gegn leigu.
Fosshótel Reykholt býður upp á allt það helsta sem alvöru sveitahótel þarf að hafa. Á hótelinu er glæsileg heilsulind í rólegu, slakandi og endurnærandi umhverfi. Hótelið ber þess merki að vera á söguslóðum en þar má finna alls kyns minjar og söguslóðir frá tímum Snorra Sturlusonar sem gerir dvölina einstaklega skemmtilega fyrir forvitna ferðamenn.
Lærðu meira um Fosshótel Reykholt.
Fullt starf
Umsóknarfrestur: 31.03.2026
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni5 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn6 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Markaðurinn5 dagar síðanTandur fyrst á Íslandi til að Svansvotta snyrtivörur
-
Pistlar4 dagar síðanSnædís Xyza Mae Ocampo skrifar – Liðið, fjölskyldan og baráttan á leið til Lyon
-
Markaðurinn6 dagar síðanSnædís Xyza keppir í Bocuse d’Or Europe í dag






