Freisting
Villibráð – meðhöndlun og meðferð

Matís, Skotveiðifélag Íslands, Matvælastofnun og Úlfar Finnbjörnsson hjá Gestgjafanum bjóða til opins fræðslufundar um þessi mál á morgun þriðjudaginn 22. september, frá kl. 8:30-09:45 á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2.
Nú er sá tími ársins að veiðar á villibráð eru í algleymingi. Veiðar landsmanna á gæs, rjúpu nú eða á stærri bráð, t.d. hreindýri, eru vinsælar sem aldrei fyrr og er, þegar þetta er ritað, nánast búið að veiða allan hreindýrakvóta þessa hausts
Hvernig eiga veiðimenn og aðrir sem koma að meðferð og meðhöndlun villibráðar að bera sig að? Menn hafa ekki alltaf verið sammála um þetta og hafa mismunandi sjónarmið oft á tíðum tekist þarna á. Sem dæmi eru hugmyndir uppi hvort kæling villibráðar, eins og hún tíðkast nú til dags, þar sem dýr er t.d. grafið í fönn og sótt síðar, sé það besta sem hægt er að gera í stöðunni til að tryggja gæði kjötsins. Eða er æskilegt að haga kælingu með öðrum hætti og hægja e.t.v. á kælingunni til að fá meyrara kjöt? Ef við hægjum á kælingunni erum við þá að taka áhættu út frá sjónarmiði matvælaöryggis og auka líkur á vexti baktería? Ofangreind sjónarmið og fleiri auk reglna um meðferð og meðhöndlun villibráðar takast þarna á.
Sérfræðingar um villibráð hafa auk þess oft skeggrætt um nýtingu hráefnisins og þykir mörgum að mun betur mætti fara í þeim efnum. Liggja tækifæri í matarferðamennsku í betri nýtingu kjöts af villibráð og væri e.t.v. hægt að skerpa enn frekar á sérstöðu Íslands í mat og drykk með því að huga betur að því hreina og ómengaða hráefni sem við höfum? Gæti matarferðamennska skapað gjaldeyri sem um munar á þessum erfiðu tímum?
Af þessu tilefni ætla Matís, Skotveiðifélag Íslands, Matvælastofnun og Úlfar Finnbjörnsson hjá Gestgjafanum að bjóða til opins fræðslufundar um þessi mál á morgun þriðjudaginn 22. september, frá kl. 8:30-09:45 á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2. Þar munu fremstu sérfræðingar landsins í meðferð og meðhöndlun villibráðar flytja erindi um þetta áhugaverða en umdeilda efni.
Dagskrá:
08:30-08:35
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Fundur settur
08:35-08:45
Ívar Erlendsson, leiðsögumaður/hreindýraguide Eftir skotið, hvað þá?
08:45-08:55
Sigmar B. Hauksson, Skotvís Betri nýting villibráðar – meiri ánægja, fleiri minningar?
08:55-09:05
Kjartan Hreinsson, MAST Löggjöf um meðferð og meðhöndlun villibráðar
09:05-09:15 Guðjón Þorkelsson, Matís Um meðferð og meðhöndlun villibráðar; tækifæri í vöruþróun?
09:15-09:25
Úlfar Finnbjörnsson, Gestgjafinn Fullnýting afurðanna ásamt kryddun, eldun og meðlæti!
09:25-09:45
Spurningar, svör, umræður
Fundarstjórn
Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís
Af vef Matis.is
-
Keppni4 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Íslandsmót barþjóna2 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
-
Markaðurinn5 dagar síðanKlassískt lasanja fær nýtt bragð með kotasælu
-
Frétt1 dagur síðanAftur greinist salmonella í nautahakki



