Freisting
Vídeó: Ferskir og skemmtilegir matreiðsluþættir

Óli og Mummi í Hótel og Matvælaskólanum
Nýi matreiðsluþátturinn Eldum íslenskt hóf göngu sína síðastliðinn mánudag undir stjórn Bjarna G. Kristinssonar, yfirmatreiðslumeistara á Hótel Sögu. Miðað við fyrsta þáttinn, þá má vænta ferskra og skemmtilegra þátta enda var hann virkilega góður.
Hótel og matvælaskólinn í sviðsljósinu
Bjarni segir að skoðaðar verði gamlar og góðar aðferðir á íslenskum mat í þáttunum og rætt við flotta bændur og matreiðslumenn. Í fyrsta þættinum lék kjötsúpan aðalhlutverkið og íslenska lambið.
Það var virkilega gaman að sjá Hótel og matvælaskólann í sviðsljósinu og á Bjarni hrós skilið fyrir að plögga skólann. Meistararakokkurinn Guðmundur Guðmundsson eða Mummi eins og hann er kallaður, kennari í Hótel og Matvælaskólanum sem kennir matreiðslunemum alla daga, sýndi áhorfendum hvernig kjötsúpan er gerð á gamla mátann. Mummi tekur sig vel út í myndbandinu, en það er eins og hann hafi aldrei gert annað en að koma fram í sjónvarpinu og fær hann hér með hinn eftirsótta titil sjónvarpskokkurinn.
Óli Þór Hilmarsson, kjötiðnaðarmeistari kenndi síðan hvernig á að úrbeina lambalæri og voru gerð góð skil á því, enda ekki allir sem kunna það.
Rætt var við ýmsa þekkta aðila inn á milli, td. Nönnu Rögnvalds, Magnús Helga bónda, Val Frey Einarsson leikara og myndlistakonuna Ilmi M. Stefánsdóttur.
Þátturinn endar á því þegar Bjarni setur gömlu kjötsúpuna í sparifötin en heldur samt sem áður í hefðina, skemmtilegur vínkill.
Eftirfarandi er fyrsti þátturinn og mælum við eindregið með að fólk horfi á hann.
Mynd: Bjarni Gunnar Kristinsson | /Smári
-
Markaðurinn2 dagar síðanLangar þig að reka eldhús með mikla möguleika?
-
Frétt4 dagar síðanEinkakokkar meðal eftirsóttustu matreiðslumanna heims
-
Frétt5 dagar síðanÍslenskir veitingastaðir sagðir of tregir til að hækka verð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanRoyal Palm South Beach opnar á ný eftir 12,5 milljarða króna endurbætur
-
Frétt4 dagar síðanVanmerkt pestósósa innkölluð úr verslunum Krónunnar
-
Frétt4 dagar síðanPálmasykur frá Royal Orient innkallaður
-
Frétt3 dagar síðanEinsi Kaldi og Vöruhúsið semja við Vestmannaeyjabæ
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanHeilum gámi af kampavíni stolið á leið til Íslands


