Freisting
Verðið á hvítlauk fimmtánfaldast

Heildsöluverð á hvítlauk í Kína hefur fimmtánfaldast frá því í mars á þessu ári, að því er LandbrugsAvisen hermir. Helsta ástæðan er talin vera sú að almenningur hamstri hvítlauk í þeirri trú að neysla hans dragi úr hættunni á að fá svínaflensu.
Þessi hækkun fylgir í kjölfar verðhruns sem varð á hvítlauk í upphafi efnahagslægðarinnar í fyrrahaust en það varð til þess að verulega dró úr framleiðslunni, en þetta kemur fram á vef Bændablaðsins bbl.is.
Kínverjar eru langstærstu framleiðendur hvítlauks í heiminum en 75% af heimsframleiðslunni á sér stað í Kína. Bent hefur verið á að önnur skýring en svínaflensan geti einnig átt þátt í verðhækkununum. Sögur herma að spákaupmenn hafi keypt mikið af hvítlauk og geymi hann þar til verðið hækkar enn meir. Sérfræðingur Morgan Stanley fjármálafyrirtækisins í Kína segir að með því að flytja hvítlaukinn úr einni geymslu í aðra sé hægt að þéna milljónir dollara.
Breska blaðið Financial Times vitnar í kínverskar sögusagnir þess efnis að hópar fjármálaspekúlanta og braskara sem hagnast hafi vel á braski með fasteignir og hlutabréf hafi nú snúið sér að hvítlauksmarkaðanum sem gefi vel af sér í augnablikinu, en þetta kemur fram á vef bbl.is.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Markaðurinn4 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Markaðurinn4 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Áhugavert2 klukkustundir síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Frétt2 dagar síðanRannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið
-
Markaðurinn2 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið



