Frétt
Varað við neyslu á Romaine salati frá Bandaríkjunum
Undanfarna daga hafa borist fréttir frá Bandaríkjunum og Kanada um hugsanlega E.coli mengun í salati. Samkvæmt faraldsfræðilegum rannsóknum beinist grunur að Romaine salati en ekki tekist að rekja frá hvaða svæði mengaða salatið kemur. Nýjustu fregnir herma að 32 hafi veikst af E.coli 157 bakteríunni vísvegar um Bandaríkin og 19 í Kanada.
Í ljósi þess þá varar Matvælastofnun neytendur sem kunna að eiga romaine salat, sem upprunnið er í Bandaríkjunum, við neyslu þess og hvetur þá til að farga því og sótthreinsa ílát sem salatið kann að vera geymt í.
Heilbrigðiseftirlitið og Matvælastofnun hafa á síðustu dögum unnið að því að afla upplýsinga um innflutning á romaine-salati til landsins sem upprunnið er í Bandaríkjunum.
Hér á landi hefur verið á markaði innflutt romaine salat, bæði frá Evrópu og Bandaríkjunum.
Innflutningsaðilar/Krónan hafa brugðust skjótt við með því að stöðva dreifingu og draga vöruna úr verslunum og fyrirtækjum sem þegar hafði verið dreift til. Var það gert í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hefur eftirlit með ræktun, dreifingu og sölu á grænmeti.
Sóttvarnarlæknir hefur ekki merkt aukningu sjúkdómstilfella vegna þessara bakteríu hér á landi. Hér er því fyrst og fremst um varúðarsjónarmið að ræða.
Krónan ehf. hefur sent frá sér fréttatilkyningu um innköllun á romaine-salati sem fyrirtækið hefur flutt inn frá Bandaríkjunum. Auk þess hefur Hollt og Gott ehf framleitt Cesarsalat með kjúklingi undir vörumerki „Eldhúsið“ fyrir Krónuna ehf sem inniheldur romaine-salat frá Bandaríkjunum og er það einnig innkallað.
Krónan bendir viðskiptavinum sem hafa keypt romaine salat frá Bandaríkjunum í verslunum Krónunnar eða Cesarsalat með kjúklingi, vörumerkið Eldhúsið, framleitt 20. Nóvember, að neyta ekki matvælanna heldur farga þeim eða skila í verslun Krónunnar og fá endurgreitt.
Neytendur eru beðnir að athuga að einungis romaine salat frá Bandaríkjunum liggur undir grun.
Samkvæmt 8. gr. reglugerðar 1294/2014 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytanda, þá eiga neytendur rétt á að vita upprunaland matjurta, bæði pakkaðra og þeirra sem er dreift án umbúða.
Á vef Matvælastofnunar má finna heilræði um meðferð grænmetis sem nota á í salat.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn2 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Markaðurinn7 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á
-
Frétt6 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt5 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Frétt6 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins
-
Keppni20 klukkustundir síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýtt frá Lavazza | Qualità Oro Dark Roast



