Freisting
Um opnunartíma og áfengisveitingar jól og áramót 2009

Nú þegar jólin eru að ganga í garð er rétt að minna á reglur um skemmtanahald. Sömuleiðis er rétt að undirstrika að áfengisveitingar eru háðar tímamörkum í leyfum borgarstjórnar eða bæjarstjórna eftir því sem við á. Lesa má nánar um opnunartíma og áfengisveitingar hér að neðan.
SKEMMTANIR OG VEITINGAR UM JÓL OG ÁRAMÓT 2009
24. des Allt skemmtanahald bannað frá: kl. 18:00
25. des Allt skemmtanahald bannað
26. des Skemmtanahald leyft frá: kl. 06:00 til kl. 03:00 aðfaranótt 27. des eða skv. skilyrðum leyfis.
1. Heimilt er að hafa gisti- og veitingastaði opna allan sólarhringinn. Áfengisveitingar eru þó háðar tímamörkum í leyfum borgarstjórnar / bæjarstjórna. Skal stöðunum lokað þegar leyfðum veitingatíma áfengis lýkur og allir gestir farnir innan klukkustundar.
2. Heimilt er að opna staðina að nýju tveimur klukkustundum eftir að áfengisveitingum átti að ljúka. Veitingar áfengis mega samt ekki hefjast aftur fyrr en reglur sveitarstjórna kveða á um.
3. Lögreglan gerir ekki athugasemdir við lágværa tónlist eða flutning sjónvarpsefnis á veitingastöðum enda sé guðsþjónusta, kirkjuathöfn eða annað helgihald ekki truflað.
Ath. Samkvæmt málsmeðferðarreglum borgarráðs um veitingastaði og gististaði frá 12.07.2007 er þeim veitingastöðum í Reykjavík sem leyfi hafa til áfengisveitinga, heimilt að veita áfengi aðfararnætur 27. desember og 2. janúar sem um aðfaranætur laugardaga, sunnudaga eða almennra frídaga væri að ræða. Lengst má þó veita áfengi til kl. 03:00.
Af Lögregluvefnum
-
Frétt2 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanBoðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum
-
Keppni6 dagar síðanNegroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Markaðurinn7 dagar síðanNathan kynnir nýja virkni sem flýtir fyrir daglegum innkaupum
-
Keppni7 dagar síðanManuel Schembri vann brons fyrir Íslands hönd



