Smári Valtýr Sæbjörnsson
Tryggvi Þór og Tumi Ferrer sigruðu Íslandsmót kaffibarþjóna
Nú um helgina fór fram tvö Íslandsmót í kaffigreinum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fjölmennt var í Ráðhúsinu og höfðu áhorfendur mikla ánægju að fylgjast með kaffibarþjónunum gera drykki og útskýra hvernig þeir unnu með hráefnið sitt.
Gestum var boðið upp á kaffi frá öllum keppendum á sérstakri bruggstöð og gafst þannig tækifæri til að smakka sama kaffið og dómararnir þurftu að meta og gefa stig fyrir.
Sjá einnig: Íslandsmót í kaffigreinum í Ráðhúsi Reykjavíkur
Íslandsmót kaffibarþjóna er haldið í fyrsta skipti síðan 2013 sem mót af þessu tagi var haldið á Íslandi.
Íslandsmót Kaffibarþjóna
Fimm keppendur kepptu á Íslandsmóti Kaffibarþjóna, en þar voru lagaðir drykkir sem voru með espresso í grunninn. Í úrslitum kepptu:
- Aldís Anna Jónsdóttir
- Guðjón Andri Rabbevåg
- Vala Stefánsdóttir
- Laimonas Domas Baranauskas
- Tryggvi Þór Skarphéðinsson
Úrslit urðu:
1. sæti Tryggvi Þór Skarphéðinsson
2. sæti Vala Stefánsdóttir
3. sæti Laimonas Domas Baranauskas
Íslandsmót í kaffigerð
Sex kaffibarþjónar kepptu á Íslandsmóti í kaffigerð en þar löguðu keppendur kaffi „upp á gamla mátann“, eða nær allar aðferðir aðrar en espresso. Á Íslandsmóti í kaffigerð var haldin aðeins ein umferð og kepptu 6 kaffibarþjónar, en þeir voru:
- Steinarr Ólafsson
- Juan Camilo Roman Estrada
- Gunnar Helgi Guðjónsson
- Jónas Marteinsson
- Tumi Ferrer
- Þorbjörg Gísladóttir
Úrslit urðu:
1. sæti Tumi Ferrer
2. sæti Gunnar Helgi Guðjónsson
3. sæti Jónas Marteinsson
Aðstandendur mótsins vilja þakka eftirfarandi styrktaraðilum fyrir aðstoðina, en án þeirra hefði þetta ekki orðið að veruleika.
MS
Te & Kaffi
Icelandair Hotels
Nýja Kaffibrennslan
Kaffitár
Kaffislippur
Exton
Svansprent
Höfuðborgarstofa
Reykjavík Roasters
Kruðerí Kaffitárs
Carlsberg
Í meðfylgjandi myndbandi má sjá Tryggva Þór keppa í kaffigerð ásamt viðtal við hann eftir keppnina:
Á næstu dögum munu upptökur af keppnusrútínum beggja keppna rata á netið. Nú þegar eru nokkrar upptökur komnar og hægt að nálgast þær með því að smella hér.
Fleiri myndir er hægt að skoða á Instagram sem merktar eru #veitingageirinn og einnig með #isbc2016.
Myndir af Instagram síðum:
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Markaðurinn14 klukkustundir síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Markaðurinn16 klukkustundir síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Frétt4 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt4 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Markaðurinn7 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Vín, drykkir og keppni20 klukkustundir síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka













