Markaðurinn
Þjónn óskast á Fosshótel Hellnar, starf í hjarta Snæfellsness
Ertu að leita þér að skemmtilegri vinnu í dínamísku og alþjóðlegu umhverfi? Fosshótel Hellnar óskar að ráða til sín þjóna frá 21. apríl – 1. nóvember. Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni:
- Fagleg móttaka gesta.
- Almenn þjónusta við borð í veitingasal.
- Upplýsingagjöf til gesta um matseðil og hráefni.
- Halda vinnusvæði snyrtilegu og hreinu.
- Þjónusta við gesti og sala.
- Samvinna með öðrum deildum til að ná markmiðum í þjónustu gesta.
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund.
- Fagmannleg framkoma, snyrtimennska.
- Góð samskiptahæfni, skipulagshæfileikar og stundvísi.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi.
- Lágmarksaldur 20 ára.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Í boði er húsnæði til leigu.
Hótelið er staðsett við rætur Snæfellsjökuls og er tilvalin upphafsstaður fyrir þá sem vilja fara í hina ýmsu leiðangra um jökulinn eða nesið. Svæðið í kringum Hellnar er algjör náttúruparadís þar sem meðal annars má finna fallegan hraunboga sem stendur í öldum strandarinnar.
Fullt starf
Umsóknarfrestur: 31.03.2026
-
Markaðurinn7 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn7 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag




