Viðtöl, örfréttir & frumraun
Það er bæði skemmtilegt og fróðlegt að hlusta á þessa fagmenn ræða um málið sem er þeim greinilega kært
Hafliði Halldórsson, matreiðslumeistari og framkvæmdastjóri markaðsstofunnar Íslenskt lambakjöt og Óli Þór Hilmarsson kjötiðnaðarmeistari og verkefnastjóri hjá Matís eru viðmælendur í Matvælinu að þessu sinni en fyrr á árinu luku þeir vinnu við rannsókn á nýtingarhlutfalli og efnainnihaldi lambakjöts og aukaafurða.
Verkefnið var unnið af Matís og markaðsstofunni Íslenskt lambakjöt í nánu samstarfi við afurðastöðvar bæði á norður- og suðurlandi. Verkefninu var hrundið af stað til þess að mögulegt væri að leggja fram ný og traust gögn til að koma í stað þeirra 20-30 ára gömlu gagna sem alla jafna var stuðst við og voru orðin úrelt. Skortur á nýjum og uppfærðum gögnum um nýtingu og næringargildi var farinn að há markaðsstarfi á lambakjöti og hliðarafurðum bæði á innanlandsmarkaði og útflutningsmörkuðum.
Það er bæði skemmtilegt og fróðlegt að hlusta á þessa fagmenn ræða um málið sem er þeim greinilega kært. Þátturinn er aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum en einnig má hlusta á hann í spilaranum hér að neðan.
-
Keppni5 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn6 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni7 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt3 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni7 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni2 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA




