Frétt
Svangur þjófur braust inn í Almars bakarí í Hveragerði
Óvenjulegt innbrot átti sér stað í Almars bakarí fyrrinótt þegar ungur þjófur hafði á brott með sér vörur úr hillum bakarísins.
Samkvæmt frétt Sunnlenska hafði þjófurinn áður brotist inn í Shellskálann í Hveragerði áður en hann hélt áfram för sinni og braust inn í bakaríið.
Þar lét hann greipar sópa og hafði á brott með sér marsipanstykki, franska vöfflu, kókoskúlu og orkudrykkinn Red Bull.
Þegar starfsfólk mætti til vinnu um nóttina varð fljótt ljóst að brotist hafði verið inn og var lögregla kölluð til. Rannsókn hófst þegar í stað og hefur nú tekist að handsama manninn sem grunaður er um verknaðinn.
Í samtali við Sunnlenska segir Lóa Ingibergsdóttir að atvikið hafi komið á óvart:
„Þetta er í fyrsta sinn sem við lendum í því að það sé brotist inn til okkar, á 17. afmælisárinu okkar. Annars erum við bara góð. Við erum mjög ánægð með að ekki varð meiri skaði og hann skemmdi ekki meira en þessa rúðu.“
Myndir: skjáskot úr myndbandi
-
Keppni2 dagar síðanÍslandsmeistari í kokteilagerð náði 3. sæti á Evrópumótinu á Kýpur
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanEyþór Ás, sonur forseta KM, sækir matreiðslunám alla leið norður til Akureyrar frá Selfossi
-
Keppni4 dagar síðanRóbert Aron Proppé keppir fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í kokteilagerð
-
Markaðurinn2 dagar síðanViltu starfa sem kokkur hjá Fosshóteli Reykholti?
-
Keppni4 dagar síðanBæði íslensku liðin mæta til leiks á fyrsta degi heimsmeistarakeppninnar
-
Markaðurinn4 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanViltu vinna í hjarta Húsavíkur? Fosshótel leitar að kokki
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan„Ómetanlegt að vita hvaðan maturinn kemur“ sagði Dóra. Um 100 manns á stefnumóti á Flúðum – Myndir






