Viðtöl, örfréttir & frumraun
Sticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu
Dansk-japanska veitingahúsakeðjan Sticks’n’Sushi lýsir árinu 2025 sem tímamótaári eftir að velta félagsins fór í fyrsta sinn yfir 100 milljónir breskra punda, eða sem nemur rúmlega 18 milljörðum íslenskra króna.
Fyrirtækið, sem rekur 32 veitingastaði í Danmörku, Bretlandi og Þýskalandi, velti um 18,8 milljörðum króna á árinu 2025, sem er um 6% aukning frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam um 1,5 milljörðum króna.
Stærsti dagur í sögu fyrirtækisins var gamlársdagur 2025 þegar dagsveltan fór í fyrsta sinn yfir 180 milljónir króna.
Á árinu opnaði Sticks’n’Sushi sinn 31. veitingastað í Glasgow, þann fyrsta utan Suðaustur-Englands. Á þessu ári hefur fyrirtækið haldið áfram sókn sinni með opnun nýs staðar í Manchester og stefnir jafnframt að fyrstu opnun sinni í Prag síðar á árinu. Þá eru Birmingham og Leeds nefndar sem næstu áfangastaðir í Bretlandi.
Andreas Karlsson, forstjóri Sticks’n’Sushi, segir að árangurinn endurspegli sterkan rekstur og gefi fyrirtækinu aukið sjálfstraust til áframhaldandi uppbyggingar. Hann segir jafnframt að góðar viðtökur í Glasgow og Manchester staðfesti að vaxtarstefnan sé á réttri leið.
Sticks’n’Sushi var stofnað í Kaupmannahöfn árið 1994 og hefur starfað á breskum markaði frá árinu 2012.
Tengt efni:
Danska veitingahúsakeðjan Sticks ‘n’ Sushi ánægð með Bretlandsmarkað eftir metár
-
Keppni6 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Markaðurinn6 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Frétt7 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Markaðurinn1 dagur síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn3 dagar síðanTax Free afsláttur af öllum vörum hjá Ásbirni
-
Markaðurinn3 dagar síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu



