Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Starbucks mætt á Laugaveginn – Myndir
Starbucks opnar í fyrsta sinn á Íslandi í dag og er nýja kaffihúsið staðsett á Laugavegi 66 í miðbæ Reykjavíkur. Þar geta viðskiptavinir nú upplifað hina rómuðu Starbucks kaffihúsastemningu sem milljónir manna njóta á hverjum degi um allan heim. Næsta kaffihús verður opnað í miðborg Reykjavíkur á næstu vikum.
Á kaffihúsinu hefur mikið verið lagt upp úr því að bjóða upp á hlýlegt rými þar sem gestir geta notið sín og kynnst fyrsta flokks kaffi Starbucks. Starbucks á Íslandi hefur nú þegar ráðið 16 manna teymi til starfa, sem samanstendur af framkvæmdastjóra, verslunarstjórum, vaktstjórum, stuðningsþjónustu og kaffibarþjónum.
„Það er mér sannur heiður og mikið ánægjuefni að fá að flytja Starbucks upplifunina til Íslands og loksins opna fyrsta kaffihúsið í hjarta Reykjavíkur,“
segir Daníel Kári Stefánsson, framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi.
„Kaffibarþjónarnir okkar hlakka til að deila þekkingu sinni og ástríðu fyrir kaffi með íslenskum viðskiptavinum á fyrsta kaffihúsi Starbucks hér á landi.“
Kaffihúsið var hannað með það að markmiði að skapa hlýlegt og hvetjandi andrúmsloft, svokallaðan þriðja stað milli heimilis og vinnu, þar sem viðskiptavinir geta slakað á, endurnært sig og notið samveru með vinum og fjölskyldu.
Á kaffihúsinu á Laugavegi verður boðið upp á allt frá vinsælum kaffidrykkjum á borð við karamellu macchiato og frappuccino með hvítu súkkulaði yfir í svalandi drykki úr Starbucks Refresha™ línunni, að því er fram kemur í tilkynningu.
Til viðbótar við fjölbreytt úrval drykkja býður Starbucks upp á veitingar, allt frá samlokum til sætinda og fer öll framleiðsla fram hér á landi. Viðskiptavinir geta einnig nálgast fjölbreytt úrval af Starbucks varningi, þar á meðal fjölnota bolla og brúsa. Meðal þess sem í boði er má nefna nýútgefna bollann úr línunni „You Are Here Collection – Iceland“.
Starbucks leggur mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð og að gefa til baka til samfélaganna sem fyrirtækið þjónar, auk þess að vera leiðandi í sjálfbærni. Fyrirtækið nálgast úrgangsmál á heildrænan hátt og leitast við að minnka sóun á kaffihúsum sínum. Þetta felur meðal annars í sér framtak eins og að bjóða viðskiptavinum 70 króna afslátt ef þeir panta drykki sína í fjölnota bolla eða brúsa.
Um Berjaya Coffee Iceland ehf
Berjaya Coffee Iceland ehf. er dótturfélag í 100% eigu Berjaya Food International, alþjóðlegs arms Berjaya Food Berhad í Malasíu, og hefur leyfi til reksturs Starbucks frá Starbucks Coffee International. Starbucks opnar með stolti sitt fyrsta kaffihús í Reykjavík þann 3. júlí 2025 og færir þannig íslenskum viðskiptavinum hina víðfrægu Starbucks upplifun. Nánari upplýsingar má finna á kaffihúsum Starbucks eða á heimasíðunni starbucks.is.
Um Starbucks
Starbucks Coffee Company hefur frá árinu 1971 lagt ríka áherslu á að afla og rista hágæða Arabica-kaffi á sjálfbæran hátt. Í dag rekur fyrirtækið yfir 40 þúsund verslanir um heim allan og er leiðandi í framleiðslu og sölu á sérvöldu kaffi. Með órofa skuldbindingu við gæði og leiðarstef sitt, töfrar Starbucks fram einstaka upplifun fyrir hvern og einn viðskiptavin í hverjum sopa. Hægt er að koma við í verslun eða heimsækja Starbucks á netinu á about.starbucks.com eða starbucks.com.
Myndir: Anton Brink
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNýr rekstraraðili tekur við Pakkhúsinu í Ólafsvík
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanÞráinn Freyr: „Það er alltaf spennandi að skapa eitthvað nýtt“
-
Markaðurinn6 dagar síðanMatreiðslumaður óskast á Hótel Reykjavík Sögu í hjarta borgarinnar
-
Markaðurinn6 dagar síðanInnnes hefur sölu á úrvals Iberico grísakjöti frá César Nieto
-
Frétt6 dagar síðanÍslandshótel taka við rekstri tveggja stórra hótela
-
Vín, drykkir og keppni15 klukkustundir síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Markaðurinn6 dagar síðanGrilltímabilið hefst með lækkuðu verði á kjöti og pylsum
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSerena Williams í óvæntri uppákomu fyrir Heineken 0.0







