Frétt
Spretthópur um alvarlega stöðu í matvælaframleiðslu

Hópurinn skilar skýrslu til ráðherra tillögum og valkostagreiningu vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi.
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ákveðið að skipa þriggja manna spretthóp sem skila skal ráðherra tillögum og valkostagreiningu vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi. Hópurinn skal skila af sér 13. júní nk. og verður niðurstaða vinnunnar kynnt fyrir ríkisstjórn 14. júní.
Verð á helstu aðföngum hefur hækkað gríðarlega í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og litlar líkur eru á að þær hækkanir gangi til baka á næstu mánuðum eða jafnvel misserum. Þessi þróun mun, að öllu óbreyttu, kippa stoðum undan rekstri bænda m.a. flestra sauðfjár- og nautgripabúa. Þannig kunni framboð á innlendri vöru að dragast verulega saman næstu misseri með tilheyrandi áhrifum á fæðuöryggi.
Það liggur fyrir að áhrif innrásarinnar í Úkraínu verða langvinn og því ljóst taka verður stöðuna alvarlega. Formaður hópsins verður Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi ráðherra, en auk hans sitja í hópnum Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands og Saga Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Matvælaráðuneytið verður hópnum til aðstoðar.
Hópurinn skal greina einstaka valkosti í stöðunni. Huga þarf sérstaklega að fæðuöryggi, verðlagi og hagsmunum neytenda og bænda í þessu samhengi.
,,Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi er björt, þrátt fyrir að nú þurfum við að yfirstíga tímabundnar áskoranir sem leiða af stríðsrekstri Rússa í Úkraínu,“
segir Svandís.
Mynd: úr safni
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn1 dagur síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember



