Pistlar
Snædís Xyza Mae Ocampo skrifar – Liðið, fjölskyldan og baráttan á leið til Lyon
Snædís Xyza Mae Ocampo, Bocuse d’Or kandídat, skrifar eftirfarandi pistil.
Bocuse d´Or Marseille
Bocuse d´Or Marseille Þvílikt ferðalag sem þetta keppnistímabil var.
Ég stíg inní þetta verkefni í mið nóvember og þá þurfti að búa til lið. Það var enginn vafi á því að ég vildi fá Möllu með mér í lið og Jakob. Svo kom Konni og Sædís í kjölfarið. Sem var himnasending. Alveg magnað hvað það voru margir sem gáfu kost á sér að koma og vera með í teyminu!

Íslenska Bocuse d´Or teymið.
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir Bocuse d’Or kandídat Íslands, Marlís Jóna Karlsdóttir aðstoðarmaður Snædísar, Viktor Örn Andrésson er í dómnefnd keppninnar sem fulltrúi Íslands. Sigurður Helgason þjálfari,
Að labba inní svona klikkað tímabil og vera locked in er alveg ómetanlegt. Sjá liðið dafna og push-a er ekkert fallegra!
Sigurður Helga var búinn að gefa kost á sér sem þjálfari. Til að komast áfram í þessari rosalegu keppni þá þurfti ég að fá þann allra besta í þá stöðu og það var ekkert annað sem kom þá til greina en að hann myndi þjálfa mig.
Það er ekki sjálfgefið að svona hlutir gangi upp, enda við eigum Helga Rafn saman. Fjölskyldan okkar steig inní þetta með okkur og minn allra besti Haffi. Án þeirra hefði þetta aldrei gengið upp.
Við fengum rúman einn og hálfan mánuð til að þróa mat og byrja að hanna fat. Eftir það voru tíma æfingar sem voru ótrúlega stífar þar sem við vorum engan vegin tilbúin í en þurftum samt að keyra á.
Enginn af okkur kunni hvorki að teikna og prenta 3D. Þannig allir í liðinu skelltu sér á 3D námskeið í mið desember og sá sem væri fljótust/astur í að ná þessu yrði í 3D haha og hann Konráð Hilmarsson eða AKA Hákon verkfræðingurinn okkar er búinn að ná græja liðið einsog hann hafi aldrei gert neitt annað.
Hráefnið í ár var erfitt að fá til landsins og mikil áskorun að reyna að fá það til okkar. Ég og Haffi enduðum á því að fara til Parísar og fengum að vera hjá íslenska sendiráðinu til að taka á móti smokkfisknum sem var ómögulegt að fá ferskan til íslands.
Það þurfti að flytja inn Red Gurnard fiskinn til okkar og stundum var ekki hægt að fá hann bæði bara útaf veðri og verkföllum sem stóðu yfir í frakklandi, þannig við enduðum á því að reyna að frysta þá til að eiga fyrir tíma æfingarnar. Að vinna með frosinn fisk er náttúrulega bara eitthvað allt annað en ferskur fiskur.
Nautið sem ég átti að keppa með fékk ég aldrei í hendurnar á æfingar tímabilinu og engan vegin var hægt að fá það til landsins og ég snerti það kjöt ekki fyrr en 2 dögum fyrir keppni. Það var enginn ofn á hótelinu sem við vorum á hérna í Marseille þannig það var græjað “rista/örbylgju ofn” sem náði ekki að halda réttu hitastigi.
Það er smá fyndið að hugsa útí þetta stutta tímabil hvað það var mikill hverfibylur sem maður þurfti að stýra í einhverja átt. Ég fékk oft comment á hversu klikkuð ég væri að gera þetta með svona stuttum fyrirvara. Svarið er já. ég hef oft hugsað þetta í gegnum tímabilið og hugsað hvað fjandanum er ég komin útí. Ekki misskilja, þetta var tryllt tímabil. Erfitt, gaman, og allar tilfinningar sem hægt er að líða.
Lífið og heimilið manns var uppí Fastus og okkur leið ekkert smá vel þarna það var ómetanlegt hvað allir voru spenntir fyrir þessu og orkan sem þau gáfu okkur var það sem skipti okkur gígantísku máli.
Einn og hálfur mánuður í þróun á mat og rúmir 2 mánuðir í að taka tíma æfingar er galinn tími fyrir þessa risa keppni. Það að maður hefði komist áfram er ótrúlegt.
En þetta er ekki bara ég. þetta er ég, liðið mitt, fjölskyldan, vinir, styrktar aðilar, vinnuveitendur, sponsor-ar , bocuse d’or akademia islands og allir þeir sem hafa trú á mér og vilja leggja hönd á plóg til að koma manni áfram.
Það að fólk fljúgi út bara til að öskra ísland fyrir framan búrið manns í 5 klst er einhver tilfinning sem ég mun aldrei gleyma.
Hlakka til að taka svo á móti ykkur á Fröken reykjavík.
Núna er það bara Lyon janúar 2027, hlakka til að keppa á móti 19 bestu keppnis kokkum heims.
© Höfundur er Snædís Xyza Mae Ocampo, Bocuse d’Or kandídat Íslands og
yfirkokkur á Fröken reykjavík.
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Frétt6 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn2 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila















