Snæbjörn með vinnings aðalréttinn; Lambakótelettur í kryddjurtaraspi
Snæbjörn Kristjánsson sigraði í matreiðslukeppninni Mondial des Chefs sem fram fór í París í Frakklandi í dag.
Þar fór fram matreiðslukeppni milli matreiðslumanna sem starfa í opinberum eldhúsum, skólum, stofnunum og mötuneytum.
Keppendur þurftu að elda fyrir 10 manns, Lambahrygg í aðalrétt og eftirrétt þar sem möndlur áttu að vera í aðalhlutverki.
Úrslitin voru:
1. sæti – Ísland, Snæbjörn Kristjánsson
2. sæti – Frakkland, Ghislain Moureaux
3. sæti – Indland, Shehrezad Kapadia
Vinningsmatseðillinn hjá Snæbirni var:
Lamb á 2 vegu. Lambakótelettur í kryddjurtaraspi og léttsteikt lambafille með lerkisveppa-byggotto, sætum kartöflum, aspas og soðsósu. Volg hindberjakaka með fullt af möndlum, hunangsrjóma, hindberjasósu og súkkulaðikremi.
Freisting heyrði í Snæbirni þegar úrslitin voru klár og var hann að vonum ánægður með sigurinn og hversu vel gekk. Sérstaklega var gaman að sigra Frakkana á heimavelli sagði hann.
Myndband frá keppninni:
Verðlauna Uppskriftir
Með fylgja uppskriftir af verðlaunaréttunum:
Lambahryggur með íslensku bankabyggi og íslenskum lerkisveppum
Fyrir 10 manns
3 kg lambahryggur
300 g bankabygg
200 g lerkisveppir
100 g skalottlaukur
1 l lambasoð
200 ml rjómi
100 ml hvítvín
50 g hvítlaukur
200 g panko brauðraspur
50 g timian
50 g steinselja
50 g basil
3 egg
Salt og pipar
4 sætar kartöflur
1 bökunarkartafla
30 kirsuberjatómatar
30 smá aspas
20 perlulaukar
100 g smjör
Aðferð
Úrbeinið lambahrygginn, búið til kótilettur og fituhreinsið restina af fillet-inu.
Sjóðið bankabyggið í 45 mínútur og geymið til hliðar.
Skerið sætu kartöfluna í teninga og bakið í olíu við 120°C í 30 mínútur.
Búið til kartöflumús úr bökunarkartöflunni og sprautið ræmu á sætu kartöfluna.
Eldið tómatana, aspasinn og perlulaukinn, og raðið ofan á sætu kartöfluna.
Steikið skalottlaukinn, sveppina, og hvítlaukinn í potti, setjið hvítvín og rjóma út á og síðan byggið, látið sjóða í ca. 5 mínútur.
Þykkið lambasoðið og bragðbætið með smjöri og salti og pipar.
Búið til kryddjurtaolíu úr steinseljunni, timianinu, basilinu og olíunni, setjið kryddjurtaolíuna út í raspinn og pannerið kótiletturnar upp úr eggjunum og kryddjurtaraspinum, steikið þær á pönnu, ásamt fillet-inu.
Bakið lambið í ofni, ásamt sætu karöflunni, og setjið á diska ásamt bygginu og sósunni
Hindberja-möndlubaka með hunangsrjóma
Fyrir 10 manns
Botn:
225 g hafrakex
50 g kókosmjöl
25 g súkkulaðispænir
50 g smjör
50 g púðursykur
2 teskeiðar kanill
Deig:
250 g smjör
250 g flórsykur
250 g möndluflögur
4 egg
50 g hveiti
Börkur af einni sítrónu
Sett ofan á:
1 kg hindber
300 ml rjómi
50 g hunang
200 g súkkulaðikrem (nutella)
50 g flórsykur
Aðferð:
Búið til botninn og setjið í botninn á skálunum.
Búið til deigið og sprautið ofan á botninn í skálunum. Setjið 6 hindber ofan á.
Bakið skálarnar í 180 gráðu heitum ofni í 14 mínútur.
Búið til hindberjasósu úr hindberjum og flórsykrinum.
Þeytið rjómann og bragðbætið með hunangi og kanil.
Setjið skálarnar á diska og skreytið með hindberjasósunni, hunangsrjómanum, súkkulaðikremi og hindberjum.