Smári Valtýr Sæbjörnsson
Sjónvarpskokkurinn Magnús Ingi í Vestmannaeyjum – Vídeó
Sjónvarpskokkurinn Magnús Ingi Magnússon var á ferð í Vestmannaeyjum nú í maí til að kynna sér ferðaþjónustu og veitingamenningu eyjaskeggja. Afraksturinn verður sýndur í þáttum Magnúsar Inga, Eldhús meistaranna, sem er á dagskrá ÍNN.
Fyrsti þátturinn um Eyjar var frumsýndur í gær föstudaginn 15. maí kl. 21.30. Þættirnir verða níu talsins og verða á dagskrá vikulega, og þess utan endursýndir fimmtán sinnum hver.
Magnús Ingi heimsækir veitingahús og gististaði, fer í skoðunarferðir og kynnir sér ítarlega hvað ferðamönnum er boðið upp á í Eyjum. Svo tekur hann hús á Elliða Vignissyni, bæjarstjóra, og kynnir sér einstaka matarmenningu Eyjamanna sem á sér djúpar rætur.
Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein í Vestmannaeyjum, eins og víða á Íslandi. Sumarfarþegar með Herjólfi erum 320.000 ári og hefur fjölgun farþega verið um 20% á ári undanfarin ár. Með tilkomu Landeyjahafnar, sem er um 130 km frá Reykjavík, tekur siglingin aðeins rúmlega hálftíma, þegar höfnin er opin sem yfirleitt er á sumrin, en ferðir Herjólfs eru allt að fimm á dag. Þeim hefur því fjölgað sem fara í dagsferðir til Eyja, ekki síst erlendum ferðamönnum.
Til að taka á móti vaxandi fjölda ferðamanna eru yfir 30 staðir í Eyjum sem selja tilbúinn mat; veitingahús, skyndibitastaðir og sjoppur, sem er líklega Íslandsmet miðað við höfðatölu, en Vestmannaeyingar eru 4.300 talsins. Flóran er einstaklega fjölbreytt og svo virðist sem veitingamenn í Eyjum standi saman og virði sérstöðu hver annars, með því t.d. að bjóða ekki upp á sömu réttina, segir í fréttatilkynningu.
Hér má sjá stiklu úr þáttunum:
Myndir: skjáskot úr myndbandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn3 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn3 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn2 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Frétt1 dagur síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni1 dagur síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí










